Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 781/2012

Nr. 781/2012 14. september 2012
AUGLÝSING
um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum.

Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Neytenda­stofa að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. október 2012 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið:

bifreiðabensín

0,46 kr. á lítra

gasolía

0,92 kr. á lítra

aðrar olíur og blöndur til brennslu

0,15 kr. á kg

flugvélabensín

0,11 kr. á lítra

flugsteinolía (þotueldsneyti)

0,14 kr. á lítra

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreif­ingar­aðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur annast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins og skulu skila því til flutnings­jöfn­unar­sjóðs olíuvara.

Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 1248/2011.

Neytendastofu, 14. september 2012.

Tryggvi Axelsson forstjóri.

Gunnar G. Þorsteinsson,     
formaður stjórnar flutnings-
jöfnunarsjóðs olíuvara.       

B deild - Útgáfud.: 27. september 2012