Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 301/2015

Nr. 301/2015 11. mars 2015
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Á eftir 16. mgr. 119. gr., um diplómanám í náms- og kennslufræði, bætist við ný málsgrein, svohljóðandi: Diplómanám í stærðfræðimenntun fyrir starfandi framhaldsskólakennara í stærðfræði er sjálfstætt 60 eininga nám á meistarastigi.

2. gr.

Stafliður a í 1. mgr. 132. gr. breytist og orðast svo: Til BS-prófs í eðlisfræði, efnafræði, hagnýttri stærðfræði, lífefnafræði og stærðfræði, ásamt stærðfræði og stærðfræðimenntun í samstarfi við menntavísindasvið, lífefna- og sameindalíffræði í samstarfi við líf- og umhverfisvísindadeild og verkfræðilegri eðlisfræði í samstarfi við aðrar deildir verkfræði- og náttúruvísindasviðs.

3. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 11. mars 2015.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 30. mars 2015