Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 498/2011

Nr. 498/2011 3. maí 2011
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 319/2009 um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands.

1. gr.

Við 27. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Eindregið er mælt með að umsækjendur um nám í lífeinda- og sameindalíffræði, sem er sameiginlega á ábyrgð raunvísindadeildar og líf- og umhverfisvísindadeildar, hafi lokið 21 einingu í stærðfræði og 30 einingum í raungreinum, þar af a.m.k. 6 einingum í eðlisfræði, 6 einingum í efnafræði og 6 einingum í líffræði.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum stjórnar verkfræði- og náttúruvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar taka þegar gildi og verður þeim beitt við inntöku stúdenta frá og með háskólaárinu 2011-2012.

Háskóla Íslands, 3. maí 2011.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 18. maí 2011