Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 942/2008

Nr. 942/2008 30. september 2008
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi frá Reykjalundarvegi að Húsadal, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 27. ágúst 2008 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingu á deiliskipulagi „Með Varmá, frá Reykja­lundarvegi að Húsadal.“ Breytingin varðar lóðina Reykjahvol 1 og felst í því að leyfð hámarksstærð bygginga á lóðinni er aukin úr 300 m² í 565 m².
Deiliskipulagsbreyting þessi hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 30. september 2008,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 14. október 2008