Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 825/2006

Nr. 825/2006 18. september 2006
REGLUGERÐ
um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 358/2003 frá 27. febrúar 2003 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða á sviði vátrygginga.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2003 frá 20. júní 2003 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 358/2003 frá 27. febrúar 2003 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða á sviði vátrygginga.

2. gr.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og EB-gerðin eru birtar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB. EB-gerðin er jafnframt birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.

Viðskiptaráðuneytinu, 18. september 2006.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Jónína S. Lárusdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 29. september 2006