Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 316/2009

Nr. 316/2009 5. mars 2009
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 1055/2006 um alþjóðlegt meistaranám í auðlindarétti og alþjóðlegum umhverfisrétti.

1. gr.

Þriðja grein breytist og verður svohljóðandi:

Meistaranámið jafngildir 90 námseiningum (ECTS) og skal meistaranemi þar af ljúka a.m.k. 60 námseiningum (ECTS) með prófum og öðru námsmati í námskeiðum og 30 náms­einingum (ECTS) með lokaverkefni, sbr. þó 4. mgr. 5. gr.

Deildarfundur lagadeildar ákvarðar hvaða námskeið boðið er upp á í meistaranáminu að fenginni tilllögu frá meistaranámsnefnd og skulu breytingar á framboði námskeiða alla jafna liggja fyrir þann 1. desember ár hvert fyrir næstkomandi háskólaár.

Heimilt er samkvæmt umsókn nemanda í meistaranáminu, sem berst lagadeild eigi síðar en 15. júní fyrir komandi háskólaár, að veita undanþágur frá því að þreyta próf í ein­stökum námskeiðum í meistaranáminu, þó að hámarki sem samsvarar 12 náms­einingum (ECTS), enda sýni nemandi þá fram á með viðeigandi gögnum að hann hafi þegar stundað sambærilegt nám á meistarastigi við háskóla.

Nemandi skal hafa lokið meistaranámi eigi síðar en þremur árum eftir fyrstu innritun í námið.

2. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði skv. heimild í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 5. mars 2009.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 25. mars 2009