Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 955/2008

Nr. 955/2008 29. september 2008
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um öryggi fiskiskipa sem eru 15 metrar eða lengri að mestu lengd, nr. 122/2004.

1. gr.

Í stað orðanna „406/121,5 MHz“ í 6.-9. reglu í hluta B um kröfur varðandi skipið í IX. kafla um fjarskipti í viðauka I um reglur um smíði og búnað fiskiskipa kemur: 406 MHz.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 3. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003, öðlast þegar gildi. Við næstu búnaðarskoðun skipa, en eigi síðar en 1. febrúar 2009, skal þess gætt að þau séu búin frífljótandi neyðarbaujum sem senda út á 406 MHz. Við næstu þjónustuskoðun gúmmíbjörgunarbáta, en eigi síðar en 1. febrúar 2009, skal þess gætt að þau séu búin neyðarsendum sem senda út á 406 MHz.

Samgönguráðuneytinu, 29. september 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 16. október 2008