1. gr. Reglugerð þessi gildir um eingreiðslur vegna atvinnuleysistrygginga í desember 2010. 2. gr. Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 5. desember 2010 og verið skráður á atvinnuleysisskrá í samtals tíu mánuði á árinu 2010 á rétt á eingreiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði að fjárhæð 44.857 kr. enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma. Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður á atvinnuleysisskrá þann tíma. 3. gr. Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 5. desember 2010 og verið skráður á atvinnuleysisskrá samtals í tíu mánuði á árinu 2010 en tryggður hlutfallslega á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri eingreiðslu skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir. Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður á atvinnuleysisskrá þann tíma. 4. gr. Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 5. desember 2010 en verið skráður á atvinnuleysisskrá í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2010 á rétt á hlutfallslegri eingreiðslu skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur verið skráður á atvinnuleysisskrá enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma, sbr. þó 5. gr. Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 5. desember 2010 en verið skráður á atvinnuleysisskrá í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2010 ásamt því að hafa verið hlutfallslega tryggður á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri eingreiðslu skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir og þann tíma sem hann hefur verið skráður á atvinnuleysisskrá á árinu 2010, sbr. þó 5. gr. Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. eða 2. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður á atvinnuleysisskrá þann tíma. 5. gr. Eingreiðsla skv. 4. gr. skal aldrei nema lægri fjárhæð en 11.214 kr. miðað við að viðkomandi hafi átt rétt á óskertu tryggingarhlutfalli skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma. Lágmarkseingreiðsla er ¼ hluti sömu fjárhæðar. 6. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Eingreiðslur samkvæmt reglugerð þessari skulu greiddar út eigi síðar en 31. desember 2010. Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 7. desember 2010. Guðbjartur Hannesson. Bjarnheiður Gautadóttir. |