Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 410/2014

Nr. 410/2014 28. apríl 2014
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 402/2013 um leyfi eða synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu (gildistaka reglugerða (ESB) nr. 378/2012, 379/2012 og 432/2012).

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. við­auka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameigin­legu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 536/2013 frá 11. júní 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 432/2012 um samantekt lista yfir leyfilegar heilsu­fullyrðingar er varða matvæli og vísa hvorki til minnkunar á sjúkdóms­áhættu né til þroska eða heilbrigðis barna. Reglugerðin var felld inn í EES-samning­inn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 222/2013, frá 14. desember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 4, frá 23. janúar 2014, bls. 231.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 851/2013 frá 3. september 2013 um leyfi fyrir tilteknum heilsufullyrðingum er varða matvæli og vísa hvorki til minnk­unar á sjúkdómsáhættu né til þroska eða heilbrigðis barna og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 432/2012. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 38/2014, frá 9. apríl 2014. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 10. apríl 2014, bls. 180.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. apríl 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.

B deild - Útgáfud.: 30. apríl 2014