Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar hefur þann 18. júlí 2014 skv. heimild í viðauka I við samþykkt nr. 596/2011 um breytingu á samþykkt um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, samþykkt tillögu að breytingu á deiliskipulagi frístundalóðar í landi Innra-Miðdals, lnr. 125198, sem hlotið hefur meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt 4. júní 2014 með athugasemdafresti til 3. júlí 2014. Engin athugasemd barst. Breytingin felst í því að lóðin stækkar til norðurs og vesturs og verður um 1 ha. Skipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F. h. Mosfellsbæjar, 18. júlí 2014, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |