Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga þann 19. nóvember 2008 samþykkt breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis við Varmá. Í breytingunni felst að anddyrisbygging við íþróttamiðstöð verður tveggja hæða, allt að 750 m² auk kjallara. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 16. desember 2008, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |