Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 316/2013

Nr. 316/2013 8. apríl 2013
AUGLÝSING
um breytt heiti og listabókstaf stjórnmálasamtaka.

Ráðuneytinu hefur borist tilkynning um að stjórnmálasamtökin Framfaraflokkurinn hafi breytt heiti sínu í Sturla Jónsson, K-listi.

Með auglýsingu nr. 210 4. mars 2013 ákvað ráðuneytið listabókstafinn K fyrir stjórn­mála­samtökin Framfaraflokkinn. Ráðuneytið ákveður hér með að stjórnmálasamtökin, sem nú heita Sturla Jónsson, K-listi, hafi skráðan listabókstafinn K.

Þetta auglýsist hér með samkvæmt 38. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24 16. maí 2000, sbr. 162. gr. laga nr. 162 28. desember 2010.

Innanríkisráðuneytinu, 8. apríl 2013.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 9. apríl 2013