Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 492/2013

Nr. 492/2013 23. maí 2013
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 475/2012 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IAS-staðal) 1, og alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IAS-staðal) 19.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 47/2013, frá 15. mars 2013, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 475/2012 frá 5. júní 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS-staðal 1 og alþjóð­legan reikningsskilastaðal IAS-staðal 19.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 475/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB nr. 20/2013, 28. mars 2013, bls. 682.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 47/2013 er birt sem fylgiskjal með reglu­gerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um árs­reikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikn­inga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reiknings­skila­staðla og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. maí 2013.

F. h. r.

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Harpa Theodórsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 28. maí 2013