Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 50/2009

Nr. 50/2009 8. janúar 2009
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um frest vegna umsókna um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda og jöfnunargjalds á árinu 2009.
  1. Frestur vegna umsókna um lækkun fyrirframgreiðslu ársins 2009, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 1209/2008, er til 1. apríl nk. vegna manna, en til 31. maí 2009 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið póst­lagðar til skattstjóra í umdæmi umsækjanda fyrir lok umsóknarfrests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skattstofn, vegna tekju­ársins 2008 sé a.m.k. 25% lægri en sá skattstofn, sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af þ.e. tekjuárið 2007 og að álögð gjöld 2009 muni af þeim sökum að lágmarki verða 50.000 kr. lægri en við álagningu 2008.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslu með fram­lagningu skattframtals 2009 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2009 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Ákvörðun skattstjóra er kæranleg til ríkisskattstjóra innan 15 daga frá dag­setningu úrskurðar.
  5. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 1209/2008 og taka þegar gildi.

Reykjavík, 8. janúar 2009.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2009