I. KAFLI Almennt. 1. gr. Gildissvið. Reglur þessar gilda um framkvæmdastjóra og stjórnarmenn fjármálafyrirtækja. Með framkvæmdastjóra er átt við einstakling sem stjórn fjármálafyrirtækis ræður til þess að standa fyrir rekstri þess í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga eða laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, burtséð frá starfsheiti að öðru leyti, sbr. 6. tölul. 1. gr. a. laga nr. 161/2002. Með stjórnarmönnum er átt við aðalmenn og varamenn í stjórn. 2. gr. Hæfi. Framkvæmdastjórar og stjórnarmenn skulu uppfylla þær hæfiskröfur sem gerðar eru til þeirra í lögum um fjármálafyrirtæki. 3. gr. Tilkynning um nýja framkvæmdastjóra eða stjórnarmenn. Fjármálafyrirtæki skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu fyrirfram, ef hægt er, um skipan og síðari breytingar á framkvæmdastjóra og stjórn. Skila skal til Fjármálaeftirlitsins eftirfarandi gögnum eigi síðar en fjórum vikum eftir kosningu nýrra stjórnarmanna eða ráðningu framkvæmdastjóra: Upplýsingagjöf framkvæmdastjóra og stjórnarmanna eftirlitsskyldra aðila samkvæmt spurningalista Fjármálaeftirlitsins. Yfirlýsingu í tengslum við mat á hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna fjármálafyrirtækja samkvæmt skjali Fjármálaeftirlitsins. Ferilskrá. Staðfestingu á starfsréttindum, ef við á. Upplýsingum um fjárhagsstöðu, m.a. um heildareignir, skuldir yfir 2 milljónum króna, tekjur, gjöld, ábyrgðir, veðsetningu eigna til þriðja aðila, vanskil og annað sem framkvæmdastjóri eða stjórnarmaður telur að skipt geti máli við mat á fjárhagslegu sjálfstæði samkvæmt eyðublaði Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið getur óskað eftir frekari gögnum en að framan greinir ef það er nauðsynlegt vegna mats á hæfi aðila. Ef upplýsingar samkvæmt framangreindu eru ófullnægjandi að mati Fjármálaeftirlitsins getur það leitt til þess að ekki verði unnt að leggja mat á hæfi aðila og fer um það samkvæmt 19. gr. reglna þessara. II. KAFLI Hæfisskilyrði. 4. gr. Mat á hæfi. Mat á hæfi felst annars vegar í yfirferð yfir skrifleg gögn og hins vegar munnlegu hæfismati þegar það á við, sbr. IV. og V. kafla reglna þessara. Yfirferð yfir skrifleg gögn, sbr. I. kafla reglna þessara, felst í athugun á því hvort aðili uppfylli m.a. skilyrði 52. gr. laga um fjármálafyrirtæki um: búsetu, lögræði, óflekkað mannorð, að hafa ekki á síðustu fimm árum verið úrskurðaður gjaldþrota, að hafa ekki á síðustu 10 árum hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað í tengslum við atvinnurekstur, fjárhagslegt sjálfstæði, menntun, nægilega þekkingu og starfsreynslu, að hafa ekki sýnt af sér háttsemi sem gefur tilefni til að draga í efa hæfni aðila og að ekki séu til staðar þær aðstæður sem kveðið er á um í 4. mgr., sbr. þó 5. og 6. mgr. 52. gr. laga um fjármálafyrirtæki.
5. gr. Dómur í tengslum við atvinnurekstur. Framkvæmdastjórar og stjórnarmenn mega ekki í tengslum við atvinnurekstur hafa hlotið dóm á síðustu 10 árum fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, samkeppnislögum, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. og ákvæðum laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, svo og sérlögum sem gilda um aðila sem lúta opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi. Með dómi í tengslum við atvinnurekstur er átt við að aðili hafi sem starfsmaður, stjórnarmaður, eigandi, verktaki eða vegna annarra tengsla við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt þeim lögum sem tilgreind eru í 1. mgr. 6. gr. Menntun. Framkvæmdastjórar og stjórnarmenn skulu hafa lokið háskólaprófi sem nýtist í starfi. Með háskólaprófi sem nýtist í starfi er átt við að aðili hafi aflað sér fræðilegrar þekkingar sem tengist starfsemi, uppbyggingu eða rekstri fyrirtækja. Fjármálaeftirlitið getur veitt undanþágu frá menntunarkröfum sýni aðili fram á að hann hafi aflað sér reynslu og þekkingar sem nýtist í starfi. Í því sambandi er m.a. litið til fyrri stjórnarsetu og fyrri starfa aðila og þeirrar þekkingar sem hann hefur aflað sér. Við mat á nægilegri reynslu og þekkingu er jafnframt höfð hliðsjón af tegund og umfangi reksturs þess fjármálafyrirtækis sem um ræðir. 7. gr. Starfsreynsla. Framkvæmdastjórar og stjórnarmenn skulu búa yfir nægilegri starfsreynslu til að geta gegnt stöðu sinni á tilhlýðilegan hátt, m.a. hafa þekkingu á þeirri starfsemi sem viðkomandi fjármálafyrirtæki stundar. Við mat á nægilegri starfsreynslu er jafnframt höfð hliðsjón af tegund og umfangi reksturs þess fjármálafyrirtækis sem um ræðir. 8. gr. Háttsemi. Framkvæmdastjórar og stjórnarmenn mega ekki hafa sýnt af sér háttsemi, athöfn eða athafnaleysi, sem gefur tilefni til að draga megi í efa hæfni þeirra til að standa fyrir traustum og heilbrigðum rekstri eða að líkur séu til að þeir muni hugsanlega misnota aðstöðu sína eða skaða félagið. Við matið er m.a. litið til háttsemi aðila sem kynni að rýra trúverðugleika hans og skaða orðspor fjármálafyrirtækisins ef opinber væri. Jafnframt er höfð hliðsjón af fyrri afskiptum Fjármálaeftirlitsins vegna starfa aðila eða vegna starfshátta eftirlitsskylds aðila sem hann var í forsvari fyrir eða bar ábyrgð á. 9. gr. Mat á hagsmunaárekstrum. Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis og stjórnarmenn annars eftirlitsskylds aðila mega ekki eiga sæti í stjórn annars eftirlitsskylds aðila eða aðila sem er tengdur honum né vera starfsmenn, lögmenn eða endurskoðendur annars eftirlitsskylds aðila eða félaga í nánum tengslum. Starfsmönnum fjármálafyrirtækis er ekki heimilt að sitja í stjórn viðkomandi fjármálafyrirtækis, sbr. 4. mgr. 52. gr. laga um fjármálafyrirtæki. Stjórnarmaður eða starfsmaður fjármálafyrirtækis getur tekið sæti í stjórn annars fjármálafyrirtækis, vátryggingafélags eða fjármálasamsteypu ef um er að ræða félag sem er að hluta eða öllu leyti í eigu fjármálafyrirtækisins eða félags sem er að hluta eða öllu leyti í eigu félags með yfirráð í fjármálafyrirtækinu. Sama gildir um lögmann móðurfélags, sbr. 5. mgr. 52. gr. laga um fjármálafyrirtæki. Stjórnarsetan er háð því að hún skapi ekki að mati Fjármálaeftirlitsins hættu á hagsmunaárekstrum á fjármálamarkaði, sbr. 6. mgr. 52. gr. laganna. Við mat á hagsmunaárekstrum samkvæmt 2. mgr. er m.a. litið til tengsla félagsins við aðra aðila á fjármálamarkaði og hvort tengslin geti skaðað heilbrigðan og traustan rekstur fjármálafyrirtækisins. Þá er við matið litið til þess hvort fyrirtækin hafi sömu starfsheimildir en hætta á hagsmunaárekstrum getur skapast ef þau teljast í samkeppni. III. KAFLI Mat á fjárhagslegu sjálfstæði. 10. gr. Fjárhagslegt sjálfstæði. Stjórnarmenn og framkvæmdastjórar fjármálafyrirtækja skulu vera fjárhagslega sjálfstæðir, sbr. 3. mgr. 52. gr. laga um fjármálafyrirtæki. Við mat Fjármálaeftirlitsins á fjárhagslegu sjálfstæði er litið til eftirfarandi atriða: Að eiginfjárstaða sé jákvæð. Að tekjur standi undir afborgunum af skuldum og framfærslu. Að skuldir, ábyrgðir gagnvart þriðja aðila og veðsetning eigna séu ekki þess eðlis að efast megi um óhæði gagnvart lánveitanda/kröfuhafa og það sé líklegt til að hafa áhrif á störf hans í viðkomandi fjármálafyrirtæki. Við mat á því hvort aðili teljist háður öðrum er horft til þess hvort skuldbindingin, með hliðsjón af árstekjum, teljist veruleg. Undanskildar skuldbindingar samkvæmt þessum lið eru hefðbundin lán sem standa almenningi til boða t.d. íbúðalán, bílalán og námslán. Annarra atriða en að framan greinir er varða fjárhagsstöðu eða fjárhagsskuldbindingar og máli geta skipt að mati Fjármálaeftirlitsins.
11. gr. Mat á fjárhagslegu sjálfstæði. Aðili telst fjárhagslega sjálfstæður ef hann uppfyllir skilyrði allra stafliða 10. gr. Ef aðili uppfyllir ekki skilyrði a. eða b. liðar 10. gr. er litið til eiginfjárstöðu og tekju- og greiðsluflæðis til framtíðar með tilliti til þess hvort aðili geti staðið við skuldbindingar sínar. Við mat á c. lið 10. gr. er litið til þess hvort líkur séu til þess að aðili yrði ítrekað vanhæfur til að taka þátt í afgreiðslu mála að teknu tilliti til ákvæða laga, reglna og annarra viðmiða þar að lútandi, sbr. t.d. 72. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og 55. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, eftir því sem við á. Með öðrum atriðum skv. d. lið 10. gr. er átt við atriði sem hafa veruleg áhrif á fjárhagslegt sjálfstæði aðila, þ. á m. atriða sem leiða til ítrekaðs vanhæfis aðila, sbr. 3. mgr. IV. KAFLI Mat á þekkingu framkvæmdastjóra. 12. gr. Munnlegt hæfismat framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri skal undirgangast hæfismat innan sex vikna frá því að hann uppfyllti þær hæfiskröfur sem fram koma í II. og III. kafla reglna þessara að mati Fjármálaeftirlitsins. Munnlegu hæfismati er ætlað að kanna hvort framkvæmdastjóri búi yfir nægilegri þekkingu til að geta gegnt stöðu sinni á tilhlýðilegan hátt. Í munnlegu hæfismati er m.a. könnuð þekking aðila á þeirri starfsemi sem viðkomandi fjármálafyrirtæki stundar, þekking á lögum og reglum á fjármálamarkaði, reikningsskilum, endurskoðun og almennum viðskiptalegum og stjórnunarlegum þáttum. Við framkvæmd hæfismats framkvæmdastjóra getur Fjármálaeftirlitið notið aðstoðar utanaðkomandi aðila, s.s. við mat á þekkingu aðila. 13. gr. Boðun framkvæmdastjóra í munnlegt hæfismat. Til hæfismats skal boðað skriflega með að minnsta kosti tveggja vikna fyrirvara og tilgreina hvaða efni verður til umræðu. Boðuðu hæfismati verður ekki frestað nema sýnt sé fram á að ríkar ástæður liggi fyrir og almennt ekki lengur en um eina viku. 14. gr. Niðurstaða munnlegs hæfismats framkvæmdastjóra. Fjármálaeftirlitið leggur mat á hvort framkvæmdastjóri hafi í munnlegu hæfismati sýnt fram á nægilega þekkingu til að geta gegnt starfi sínu á tilhlýðilegan hátt. Fjármálaeftirlitið tilkynnir framkvæmdastjóra og stjórn viðkomandi fjármálafyrirtækis skriflega um niðurstöðu hæfismats innan tveggja vikna frá framkvæmd þess. 15. gr. Endurtekning munnlegs hæfismats framkvæmdastjóra. Hafi framkvæmdastjóri að mati Fjármálaeftirlitsins ekki sýnt fram á fullnægjandi þekkingu á því efni sem var til umræðu í hæfismati er honum gefinn kostur á að endurtaka munnlega hæfismatið innan fjögurra vikna frá því að niðurstaðan liggur fyrir. Hæfismat verður einungis endurtekið einu sinni, nema sérstök rök leiði til annars. 16. gr. Undanþágur frá munnlegu hæfismati framkvæmdastjóra. Hafi framkvæmdastjóri á síðastliðnum 12 mánuðum sinnt starfi framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækis með sömu tegund starfsleyfis og staðist hæfiskröfur Fjármálaeftirlitsins vegna þess starfs getur hann óskað eftir undanþágu frá munnlegu hæfismati. Beiðni um undanþágu skal send Fjármálaeftirlitinu með skriflegum hætti og studd viðeigandi gögnum. Fjármálaeftirlitið getur óskað viðbótarupplýsinga ef þörf krefur. V. KAFLI Mat á þekkingu stjórnarmanna. 17. gr. Munnlegt hæfismat stjórnarmanna. Fjármálaeftirlitið metur hvort stjórnarmenn skuli gangast undir munnlegt hæfismat. Við framkvæmd hæfismats stjórnarmanna getur Fjármálaeftirlitið notið aðstoðar utanaðkomandi aðila, s.s. við mat á þekkingu aðila. Ákvæði IV. kafla reglna þessara gilda eftir því sem við á um munnlegt hæfismat stjórnarmanna. VI. KAFLI Mat á hæfi. 18. gr. Hæfisskilyrði uppfyllt. Telji Fjármálaeftirlitið að aðili uppfylli hæfisskilyrði laga um fjármálafyrirtæki og ákvæði reglna þessara tilkynnir það aðila og stjórn fjármálafyrirtækis skriflega um niðurstöðu sína. 19. gr. Hæfisskilyrði ekki uppfyllt. Telji Fjármálaeftirlitið að aðili uppfylli ekki hæfisskilyrði laga um fjármálafyrirtæki og ákvæði reglna þessara eða ef ekki er unnt að leggja mat á hæfi aðila samkvæmt 3. mgr. 3. gr. reglna þessara tilkynnir það aðila og stjórn fjármálafyrirtækis skriflega um niðurstöðu sína ásamt rökstuðningi. Aðila sem uppfyllir ekki hæfisskilyrði laga um fjármálafyrirtæki og reglna þessara er óheimilt að gegna starfi framkvæmdastjóra eða taka sæti í stjórn fjármálafyrirtækis. Hafi aðili hafið störf getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að aðili láti af störfum, ýmist tímabundið eða til frambúðar. Ef kröfum Fjármálaeftirlitsins er ekki sinnt innan hæfilegra tímamarka getur Fjármálaeftirlitið einhliða vikið aðila frá störfum, sbr. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. 20. gr. Viðvarandi mat á hæfi. Framkvæmdastjórar og stjórnarmenn skulu á hverjum tíma uppfylla hæfisskilyrði laga um fjármálafyrirtæki og ákvæði reglna þessara. Verði breytingar á áður veittum upplýsingum sem geta haft áhrif á hæfi aðila ber honum að tilkynna það til Fjármálaeftirlitsins án tafar en eigi síðar en innan tveggja vikna frá breytingunum. Fjármálaeftirlitið getur á hverjum tíma tekið hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna til sérstakrar skoðunar, svo sem ef háttsemi þeirra í störfum fyrir fjármálafyrirtæki gefur tilefni til eða ef veigamiklar breytingar verða á umfangi, störfum, rekstri eða lagaumhverfi fjármálafyrirtækis. 21. gr. Mat á hæfi í tengslum við umsókn um starfsleyfi. Ef mat á hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna tengist umsókn um starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, og viðkomandi aðili uppfyllir ekki hæfisskilyrði laga um fjármálafyrirtæki, verður starfsleyfi ekki veitt fyrirtækinu. Fjármálaeftirlitið getur í tengslum við umsókn um aukið starfsleyfi ákveðið að taka hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna til endurskoðunar. Uppfylli viðkomandi aðili ekki hæfisskilyrði laga um fjármálafyrirtæki verður aukið starfsleyfi ekki veitt fyrirtækinu. VII. KAFLI Gildistaka. 22. gr. Gildistaka. Reglur þessar eru settar með heimild í 3. mgr. 52. gr. laga um fjármálafyrirtæki og öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 627/2011 um framkvæmd hæfismats framkvæmdastjóra og stjórnarmanna fjármálafyrirtækja. Fjármálaeftirlitinu, 17. október 2012. Unnur Gunnarsdóttir. Halldóra E. Ólafsdóttir. |