Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 8. október 2008 samþykkt deiliskipulag tveggja frístundalóða við Nátthagavatn, landnúmer 125236. Skipulagið gerir ráð fyrir að á hvorri lóð megi reisa frístundahús allt að 70 m² að stærð auk allt að 10 m² geymsluhúss. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 29. október 2008, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |