Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 445/2014

Nr. 445/2014 16. apríl 2014
REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.

1. gr.

Í stað orðanna „Rannsóknastofnun landbúnaðarins“ í 1. mgr. 3. gr. og sömu orða hvar­vetna annars staðar í reglugerðinni kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Matvælastofnun.

2. gr.

9. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Matvælastofnun er heimilt að leyfa innflutning á plöntum og öðrum vörum sem falla undir a-e lið 1. mgr. 5. gr. í vísinda- og fræðatilgangi eða af öðrum ástæðum, enda sé tryggt að engir skaðvaldar berist til landsins við innflutning. Heimilt er að setja skilyrði fyrir innflutningnum sem umsækjandi skuldbindur sig til að hlíta, svo sem um sótthreinsun, ræktun í sóttkví o.fl. Umsóknir skulu berast Matvælastofnun skriflega ásamt rökstuðningi fyrir nauðsyn innflutnings.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum í plöntum, nr. 51/1981. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. apríl 2014.

Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

B deild - Útgáfud.: 7. maí 2014