Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 679/2010

Nr. 679/2010 19. ágúst 2010
AUGLÝSING
um deiliskipulag Varmalands 2 í Mosfellsdal, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 19. maí 2010 samþykkt deiliskipulag fyrir Varmaland 2 í Mosfellsdal, landnúmer 123810.
Í deiliskipulaginu eru skilgreindir tveir byggingarreitir á landinu, annar fyrir íbúðarhús, bílskúr og vinnustofu en hinn fyrir gripahús. Hámarksnýtingarhlutfall er sett 0,15.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 19. ágúst 2010,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 2. september 2010