Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 258/2008

Nr. 258/2008 27. febrúar 2008
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi Krikahverfis, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 16. janúar 2008 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingu á deiliskipulagi Krikahverfis vegna Litlakrika 25. Skipulagsbreytingin felst í stækkun lóðar og byggingarreits til norðurs, breytingu á gangstétt og færslu þriggja langsumbílastæða við götu að vesturmörkum lóðarinnar, sem skerðist þeim megin sem því nemur.
Deiliskipulagsbreyting þessi hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 27. febrúar 2008,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 13. mars 2008