Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 444/2014

Nr. 444/2014 5. maí 2014
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi Dalsbús í Helgadal, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 23. apríl 2014 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi minkabúsins Dalsbús í Helgadal. Tillagan var grenndarkynnt 3. mars til 2. apríl 2014 og barst ein athugasemd.
Breytingar á deiliskipulaginu eru einkum þær, að afmörkun lands Dalsbús breytist til samræmis við nýtt mæliblað og samkomulag landeigenda, og að byggingarreitur minkabús stækkar lítillega til vesturs.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 5. maí 2014,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 7. maí 2014