1. gr. Við III. viðauka reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir á viðeigandi stað, svohljóðandi: a) Undanþága | Gildissvið og gildistími | 1.g. | Til almennrar lýsingar < 30 W með a.m.k. 20.000 klst. endingartíma: 3,5 mg | Fellur úr gildi 31. desember 2017. |
b) 4.g. | Kvikasilfur í handgerðum lýsandi úrhleðslupípum, sem eru notaðar í skilti, skrautlýsingu eða lýsingarhönnun arkitekta ásamt sérstakri lýsingu og ljósalist skal takmarkast á eftirfarandi hátt: a) 20 mg á hvert rafskautapar + 0,3 mg fyrir hvern sentimetra pípulengdar, en ekki meira en 80 mg þegar þær eru notaðar utandyra og þegar þær eru notaðar innandyra við hitastig sem er undir 20°C b) 15 mg á hvert rafskautapar + 0,24 mg fyrir hvern sentimetra pípulengdar, en ekki meira en 80 mg fyrir alla notkun innandyra | Fellur úr gildi 31. desember 2018 |
c) 41. | Blý í lóðningarefni og húðun á tengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og húðun á prentplötum sem eru notaðar í kveikjueiningar og önnur rafmagns- og rafeindastjórnkerfi hreyfils sem þurfa af tæknilegum ástæðum að festast beint á vélar handverkfæra með brunahreyfil, sveifarhús þeirra eða strokk (flokkar SH1, SH2, SH3 tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 97/68/EB) | Fellur úr gildi 31. desember 2018 |
2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á IV. viðauka reglugerðarinnar: a) Í stað 12. töluliðar kemur nýr liður, svohljóðandi: Blý og kadmíum í málmtengi sem búa til ofurleiðandi segulrásir í nemum segulómtækja (MRI), ofurleiðnisegulmæla (SQUID), kjarnsegulómsefnagreina (NMR) eða Fourier-vörpunarmassagreina (FTMS). Fellur úr gildi 30. júní 2021. b) Við bætast tuttugu nýir töluliðir, 21.-40. töluliður, svohljóðandi: Kadmíum í fosfórhúðir í skyggnimögnurum fyrir röntgenmyndir til 31. desember 2019 og í varahluti fyrir röntgentæki, sem eru sett á markað í Evrópusambandinu fyrir 1. janúar 2020. Merkiefnið blýasetat til notkunar í hnitstýrða (e. stereotactic) höfuðramma til notkunar við tölvusneiðmyndatöku og segulómun og í staðsetningarkerfi í búnað fyrir gammageisla- og agnageislameðferð. Fellur úr gildi 30. júní 2021. Blý sem málmblendisþáttur í legum og slitflötum í lækningatækjum sem verða fyrir jónandi geislun. Fellur úr gildi 30. júní 2021. Blý til að gera lofttæmisheldar tengingar mögulegar milli áls og stáls í röntgenskyggnimögnurum. Fellur úr gildi 31. desember 2019. Blý í yfirborðshúðir á pinnatengikerfum sem krefjast óseglaðs tengilbúnaðar sem er notaður varanlega við hitastig undir -20°C við eðlileg notkunar- og geymsluskilyrði. Fellur úr gildi 30. júní 2021. Blý í – | lóðningarefni á prentplötur, | – | húðir á úttakstengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og húðir á prentplötum, | – | lóðningarefni til að tengja víra og rafstrengi, | – | lóðningarefni til að tengja ferjöld og skynjara, |
sem eru notuð varanlega við hitastig undir -20°C við eðlileg notkunar- og geymsluskilyrði. Fellur úr gildi 30. júní 2021. Blý í – | lóðningarefni, | – | húðir á úttakstengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og prentplötum, | – | tengingar raftauga, hlífa og umluktra tengja, | sem eru notuð í: | a) | segulsviði innan kúlurýmis með 1 m geisla í kringum segulmiðju í læknisfræðilegum segulómtækjum, þ.m.t. lífsmarkavaktarar sem eru hannaðir til notkunar innan þessa rýmis, eða | b) | segulsviði innan 1 m fjarlægðar frá ytri flötum segla hringhraðla og segla til færslu og stefnustýringar geisla, sem eru notaðir við agnageislameðferð. | Fellur úr gildi 30. júní 2020. |
Blý í lóðningarefni til að festa stafræna fylkisfjölnema úr kadmíumtellúri og kadmíumsinktellúri á prentplötur. Fellur úr gildi 31. desember 2017. Blý í málmblendi sem ofurleiðara eða varmaleiðara til nota í kulhausa lághitakæla og/eða í lághitakælda kulkanna (e. cold probes) og/eða í lághitakæld spennujöfnunarkerfi í lækningatækjum (í 8. flokki) og/eða í vöktunar- og stýritækjum í iðnaði. Fellur úr gildi 30. júní 2021. Sexgilt króm í basaskammtara sem eru notaðir til framleiðslu á ljósbakskautum í röntgenskyggnimögnurum til 31. desember 2019 og í varahluti fyrir röntgentæki sem eru sett á markað í Evrópusambandinu fyrir 1. janúar 2020. Blý, kadmíum og sexgilt króm í endurnotuðum varahlutum úr lækningatækjum sem eru sett á markað fyrir 22. júlí 2014 og notuð í búnað í 8. flokki sem er settur á markað fyrir 22. júlí 2021, að því tilskildu að sú endurnotkun fari fram í endurskoðunarhæfu, lokuðu skilakerfi fyrir viðskipti á milli fyrirtækja og að endurnotkun hluta sé tilkynnt neytendum. Fellur úr gildi 21. júlí 2021. Blý í lóðningarefni á prentplötur nema og gagnasöfnunareininga fyrir jáeindaskanna sem eru innbyggðir í segulómtæki (MRI). Fellur úr gildi 31. desember 2019. Blý í lóðningarefni á prentplötur með íhlutum sem eru notaðar í færanleg lækningatæki, önnur en færanleg neyðarhjartastuðtæki, í II. flokki a og II. flokki b í tilskipun 93/42/EBE. Fellur úr gildi 30. júní 2016 að því er varðar flokk II a og 31. desember 2020 að því er varðar flokk II b. Blý sem örvari í flúrljómandi dufti úrhleðslupera þegar þær eru notaðar í lampa til ljósmeðferðar á blóði utan líkama (e. extracorporeal photopheresis lamps) og innhalda BSP-fosfór (BaSi2O5:Pb). Fellur úr gildi 22. júlí 2021. Kvikasilfur í kaldskautsflúrperur fyrir baklýsta vökvakristalsskjái, sem er ekki meira en 5 mg í hverri peru, sem eru notaðir í vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði sem eru sett á markað fyrir 22. júlí 2017. Fellur úr gildi 21. júlí 2024. Blý notað í önnur kerfi en tengikerfi með sveigjanlegum pinnum í vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði. Fellur úr gildi 31. desember 2020. Má nota eftir þann dag í varahlutum fyrir vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði sett á markað fyrir 1. janúar 2021. Blý í platínuhúðuð platínurafskaut sem eru notuð til að mæla eðlisleiðni þar sem a.m.k. eitt af eftirfarandi skilyrðum á við: a) | mælingar á breiðu sviði eðlisleiðni sem nær yfir meira en eitt stærðarþrep (t.d. svið á bilinu 0,1 mS/m og 5 mS/m) sem fara fram á tilraunastofum til að mæla styrk sem er óþekktur, | b) | mælingar á lausnum þar sem krafist er nákvæmni sem nemur +/– 1% af sýnatökubilinu og þar sem krafist er mikils tæringarþols fyrir eftirfarandi: | | i. | lausnir með sýrustig undir pH 1, | | ii. | lausnir með basavirkni yfir pH 13, | | iii. | ætandi lausnir sem innihalda halógenlofttegundir, | c) | mælingar á eðlisleiðni sem er meiri en 100 mS/m sem verða að fara fram með færanlegum mælitækjum. | Fellur úr gildi 31. desember 2018. |
Blý í lóðningarefni til tengingar á stöfluðum skífueiningum (SDE) fyrir stóra fleti með yfir 500 samtengi á hvern skilflöt sem eru notaðir í röntgengeislaskynjara fyrir tæki til tölvusneiðmyndatöku og fyrir röntgentæki. Fellur úr gildi 31. desember 2019. Má nota eftir þann dag í varahluti fyrir tölvusneiðmyndatæki og röntgentæki sett á markað fyrir 1. janúar 2020. Blý í örrásaplötum sem eru notaðar í búnaði þar sem a.m.k. einn af eftirfarandi eiginleikum er til staðar: a) | fyrirferðarlítill nemi fyrir rafeindir eða jónir, þar sem rými fyrir nemann takmarkast að hámarki við 3 mm/örrásaplötu (þykkt nema + rými til ísetningar örrásaplötu), að hámarki 6 mm í allt og annars konar hönnun, sem gefur aukið rými fyrir nemann, er vísindalega og tæknilega ekki möguleg, | b) | tvívíð rúmupplausn (e. spatial resolution) til greiningar á rafeindum eða jónum sem a.m.k. eitt af eftirfarandi gildir um: | | i. | svörunartími styttri en 25 ns, | | ii. | sýnagreiningarsvæði stærra en 149 mm², | | iii. | margföldunarstuðull hærri en 1,3 × 10³, | c) | svörunartími við greiningu rafeinda eða jóna styttri en 5 ns, | d) | sýnagreiningasvæði stærra en 314 mm² til að greina rafeindir eða jónir, | e) | margföldunarstuðull hærri en 4,0 × 107. | Undanþágan fellur úr gildi á eftirfarandi dagsetningum: | a) | 21. júlí 2021 að því er varðar lækningatæki og vöktunar- og eftirlitstæki, | b) | 21. júlí 2023 að því er varðar lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi, | c) | 21. júlí 2024 að því er varðar vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði. |
Blý í rafefnakeramík í þéttum fyrir málspennu sem er lægri en 125 V riðstraumur eða 250 V jafnstraumur fyrir vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði. Fellur úr gildi 31. desember 2020. Má nota eftir þann dag í varahlutum fyrir vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði sett á markað fyrir 1. janúar 2021.
3. gr. Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum: Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/1/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý sem málmblendisþátt í legum og slitflötum í lækningatækjum sem verða fyrir jónandi geislun, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/2/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir kadmíum í fosfórhúðir í skyggnimögnurum fyrir röntgenmyndir til 31. desember 2019 og í varahluti fyrir röntgentæki sem sett eru á markað í Evrópusambandinu fyrir 1. janúar 2020, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/3/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir merkiefnið blýasetat til notkunar í hnitstýrða (e. stereotactic) höfuðramma til notkunar við tölvusneiðmyndatöku og segulómun og í staðsetningarkerfi í búnað fyrir gammageisla- og agnageislameðferð, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/4/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý til að gera lofttæmisheldar tengingar mögulegar milli áls og stáls í röntgenskyggnimögnurum, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/5/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni á prentplötur, húðir á úttakstengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og húðir á prentplötum, lóðningarefni til að tengja víra og rafstrengi og lóðningarefni til að tengja ferjöld og skynjara, sem eru notuð varanlega við hitastig undir -20°C við eðlileg notkunar- og geymsluskilyrði, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/6/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í yfirborðshúðir á pinnatengikerfum sem krefjast óseglaðs tengilbúnaðar sem er notaður varanlega við hitastig undir -20°C við eðlileg notkunar- og geymsluskilyrði, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/7/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni, húðir á úttakstengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og prentplötum, tengingar raftauga, hlífa og umluktra tengja, sem eru notuð a) í segulsviði innan kúlurýmis með 1 m geisla í kringum segulmiðju í læknisfræðilegum segulómtækjum, þ.m.t. lífsmarkavaktarar sem eru hannaðir til notkunar innan þessa rýmis, eða b) í segulsviði innan 1 m fjarlægðar frá ytri flötum segla hringhraðla og segla til færslu og stefnustýringar geisla, sem eru notaðir við agnageislameðferð, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/8/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni til að festa stafræna fylkisfjölnema úr kadmíumtellúri og kadmíumsinktellúri á prentplötur, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/9/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý og kadmíum í málmtengi sem búa til ofurleiðandi segulrásir í nemum segulómtækja (MRI), ofurleiðnisegulmæla (SQUID), kjarnsegulómsefnagreina (NMR) eða Fourier-vörpunarmassagreina (FTMS), í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/10/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í málmblendi sem ofurleiðara eða varmaleiðara til nota í kulhausa lághitakæla og/eða í lághitakælda kulkanna (e. cold probes) og/eða í lághitakæld spennujöfnunarkerfi í lækningatækjum (í 8. flokki) og/eða í vöktunar- og stýritækjum í iðnaði, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/11/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir sexgilt króm í basaskammtara sem eru notaðir til framleiðslu á ljósbakskautum í röntgenskyggnimögnurum til 31. desember 2019 og í varahluti fyrir röntgentæki sem eru sett á markað í Evrópusambandinu fyrir 1. janúar 2020, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/12/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni á prentplötur nema og gagnasöfnunareininga fyrir jáeindaskanna sem eru innbyggðir í segulómtæki (MRI), í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/13/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni á prentplötur með íhlutum sem eru notaðar í færanleg lækningatæki, önnur en færanleg neyðarhjartastuðtæki, í II. flokki a og II. flokki b í tilskipun 93/42/EBE, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/14/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir 3,5 mg af kvikasilfri á hverja peru í sambyggðum flúrlömpum með einum sökkli til almennrar lýsingar < 30 W með a.m.k. 20.000 klst. endingartíma, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/15/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý, kadmíum og sexgilt króm í endurnotuðum varahlutum úr lækningatækjum sem eru sett á markað fyrir 22. júlí 2014 og notuð í búnað í 8. flokki sem er settur á markað fyrir 22. júlí 2021, að því tilskildu að sú endurnotkun fari fram í endurskoðunarhæfu, lokuðu skilakerfi fyrir viðskipti á milli fyrirtækja og að endurnotkun hlutanna sé tilkynnt neytendum, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/16/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý sem örvara í flúrljómandi dufti úrhleðslupera þegar þær eru notaðar í lampa til ljósmeðferðar á blóði utan líkama (e. extracorporeal photopheresis lamps) og innihalda BSP-fosfór (BaSi2O5:Pb), í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/69/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í rafefnakeramík í þéttum fyrir málspennu sem er lægri en 125 V riðstraumur eða 250 V jafnstraumur fyrir vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/70/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í örrásaplötur, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/71/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni til tengingar á stöfluðum skífueiningum (SDE) fyrir stóra fleti, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/72/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni og húðun á tengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og húðun á prentplötum sem eru notaðar í kveikjueiningar og önnur rafmagns- og rafeindastjórnkerfi hreyfils, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/73/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í platínuhúðuð platínurafskaut, sem eru notuð til að mæla eðlisleiðni, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/74/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í önnur tengikerfi með sveigjanlegum pinnum en þrýstibogatengi fyrir vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/75/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir kvikasilfur í kaldskautsflúrperur fyrir baklýsta vökvakristalsskjái, sem er ekki meira en 5 mg í hverri peru, sem eru notaðir í vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði sem eru sett á markað fyrir 22. júlí 2017, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014. Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/76/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir kvikasilfur í handgerðar lýsandi úrhleðslupípur, sem eru notaðar í skilti, skrautlýsingu eða lýsingarhönnun arkitekta ásamt sérstakri lýsingu og ljósalist, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014.
4. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi. Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 9. október 2014. F. h. r. Sigríður Auður Arnardóttir. Steinunn Fjóla Sigurðardóttir. |