Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1253/2007

Nr. 1253/2007 20. desember 2007
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

1. gr.

Í stað „185.400 kr.“ í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 191.518 kr.

2. gr.

Í stað „5.272 kr.“ í 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 5.446 kr.

3. gr.

Á eftir 2. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 2. gr. a, svohljóðandi:

Frítekjumark skv. 2. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skal vera 53.716 kr. á mánuði.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 2. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysis­tryggingar, öðlast gildi 1. janúar 2008. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1103/2006, um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

Félagsmálaráðuneytinu, 20. desember 2007.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 28. desember 2007