Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 21. nóvember 2007 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga Helgafellshverfis. Skipulagsbreytingin felst í því að lögun botnlanga út úr Sölkugötu breytist og bílastæðum við hann fækkar en fjölgar í staðinn um eitt úti í götunni. Lóðir númer 2, 4 og 6 stækka og lögun byggingarreita á þeim breytist. Deiliskipulagsbreyting þessi hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 21. desember 2007, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |