Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármálaráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. Tekjuskattshlutfall á árinu 2012 verður 22,9% af tekjuskattsstofni að 2.760.000 kr., 25,8% af tekjuskattsstofni frá 2.760.001 kr. að 8.452.400 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 8.452.401 kr. Meðalútsvar á árinu 2012 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,44%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2012 verður því 37,34% af tekjuskattsstofni að 2.760.000 kr., 40,24% af tekjuskattsstofni frá 2.760.001 kr. að 8.452.400 kr. og 46,24% af tekjuskattsstofni frá 8.452.401 kr. Sé tekjuskattsstofn annars samskattaðs aðila hærri en 8.452.400 kr. skal það sem umfram er skattlagt með 25,8% skatthlutfalli allt að helmingi þeirrar fjárhæðar sem tekjuskattsstofn þess tekjulægri er undir 8.452.400 kr., þó reiknast 25,8% skatthlutfall aldrei af hærri fjárhæð en 2.846.200 kr. við þessar aðstæður. Samkvæmt A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2012 vera 558.385 krónur, eða 46.532 krónur að meðaltali á mánuði. Fjármálaráðuneytinu, 23. desember 2011. F. h. r. Ingibjörg Helga Helgadóttir. Sóley Ragnarsdóttir. |