Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 518/2013

Nr. 518/2013 4. júní 2013
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 835/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 669/2009 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar aukið, opinbert eftirlit með innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum, sem eru ekki úr dýraríkinu.

1. gr.

Innleiðing.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla í I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftir­farandi ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 212/2010 um breytingu á reglu­gerð (EB) nr. 669/2009 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðs­ins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar aukið, opinbert eftirlit með innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum sem eru ekki úr dýraríkinu.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1235/2012 um breyt­ingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 669/2009 um framkvæmd reglu­gerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar aukið, opin­bert eftirlit með innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum sem eru ekki úr dýra­ríkinu.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 91/2013 um sérstök skilyrði fyrir innflutningi á jarðhnetum frá Gana og Indlandi, okru og karrílaufi frá Indlandi og vatnsmelónufræi frá Nígeríu og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 669/2009 og (EB) nr. 1152/2009.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 270/2013 um breyt­ingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 669/2009 um framkvæmd reglu­gerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar aukið, opinbert eftirlit með innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum sem eru ekki úr dýra­ríkinu.

2. gr.

Fylgiskjöl.

Reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr. eru birtar sem fylgiskjöl 1-4 við reglu­gerð þessa.

3. gr.

Eftirlit.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna fóðureftirlits sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum eða 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. júní 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 5. júní 2013