Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 855/2009

Nr. 855/2009 16. október 2009
AUGLÝSING
um deiliskipulag Lækjarness í Mosfellsdal.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 7. nóvember 2007 samþykkt deiliskipulag Lækjar­ness (úr landi Laxness) í Mosfellsdal. Skipulagssvæðið er um 1,4 ha og er innan land­búnaðar­svæðis. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir tveimur byggingarreitum, annars vegar fyrir íbúðarhús og hinsvegar fyrir hesthús. Kvaðir eru settar um umferð að golfvelli, um reiðleið meðfram Köldukvísl og um raflínu.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 16. október 2009,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 19. október 2009