Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 582/2007

Nr. 582/2007 29. júní 2007
AUGLÝSING
um deiliskipulag III. áfanga Helgafellshverfis, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 11. apríl 2007 í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulag þriðja áfanga íbúðarhverfis í Helgafellslandi. Deiliskipulagið fjallar um 14,6 ha svæði syðst og vestast í fyrirhuguðu Helgafellshverfi, og er í því gert ráð fyrir 114 íbúðum á 57 lóðum, aðallega í sérbýli. Innan deiliskipulagsins meðfram Varmá og Skammadalslæk, sem afmarka skipulagssvæðið til suðurs, eru opin svæði sem eru undir hverfisvernd skv. aðalskipulagi. Varmá er á náttúruminjaskrá.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 29. júní 2007,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 2. júlí 2007