Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 226/2010

Nr. 226/2010 1. mars 2010
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024, Suðvesturlínur og tengivirki á Sandskeiði, Mosfellsbæ.

Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur ráðherra þann 1. mars 2010 staðfest breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024 frá 8. júlí 2003.
Fyrirhugaðar eru breytingar á flutningskerfi raforku þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum og enduruppbyggingum háspennulína um Sandskeið til Hafnarfjarðar ásamt niðurrifi háspennulína frá Sandskeiði að Geithálsi. Breytingarnar innan sveitarfélagsins eru eftirfarandi:

  1. Sogslína 2 (132 kV) fellur brott. Eftir stendur Sandskeiðslína 2 (220 kV) milli Geitháls og Sandskeiðs.
  2. Kolviðarhólslína 1 (220 kV) verður endurbyggð frá Kolviðarhóli að Sandskeiði.
  3. Kolviðarhólslína 2 (220 kV) ný lína frá Sandskeiði að Hamranesi.
  4. Búrfellslína 3 (400 kV) ný lína frá Sandskeiði að Hamranesi.
  5. Sandskeiðslína 1 (400 kV) ný lína frá Sandskeiði að Hrauntungum.
  6. Opið óbyggt svæði á Sandskeiði, 5 ha að stærð, breytist í iðnaðarsvæði þar sem gert er ráð fyrir tengivirki.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun yfirfarið erindið og sent ráðherra til staðfestingar.
Breytingin öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 1. mars 2010.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Logi Kjartansson.

B deild - Útgáfud.: 16. mars 2010