Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 232/2010

Nr. 232/2010 2. mars 2010
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1004/2008 (að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 39, og alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 7).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2009, frá 5. febrúar 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1004/2008 frá 15. október 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1725/2003 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 39, og alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 7.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1004/2008 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB, nr. 6/2010, 5. febrúar 2010, bls. 251.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB, nr. 16/2009, 19. mars 2009, bls. 29.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikn­inga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 2. mars 2010.

Gylfi Magnússon.

Jónína S. Lárusdóttir.

B deild - Útgáfud.: 18. mars 2010