Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1170/2014

Nr. 1170/2014 19. desember 2014
REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2015.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2015 eru settar skv. 118. gr. nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning land­bún­aðarskýrslu rekstrarársins 2015.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfs­manna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna á rekstrarreikningi landbún­aðar­skýrslu. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2015 er sem hér segir:

Tegund

Krónur

Eining

Mjólk

83     

 pr. lítra

Egg

512     

 pr. kg

Kartöflur

102     

 pr. kg

Rófur

143     

 pr. kg

Gulrætur

305     

 pr. kg

Lambakjöt

652     

 pr. kg

Kjöt af veturgömlu fé

282     

 pr. kg

Annað kjöt af sauðfé

180     

 pr. kg

Ungnautakjöt

685     

 pr. kg

Annað kjöt af nautgripum

445     

 pr. kg

Folaldakjöt

305     

 pr. kg

Annað kjöt af hrossum

120     

 pr. kg

Grísakjöt

423     

 pr. kg

Annað svínakjöt

302     

 pr. kg

Kalkúnar, endur og gæsir

640     

 pr. kg

Annað fuglakjöt

429     

 pr. kg

Fiskur

550     

 pr. kg


Reykjavík, 19. desember 2014.

F.h. ríkisskattstjóra,

Ingvar J. Rögnvaldsson.

Elín Alma Arthursdóttir.

B deild - Útgáfud.: 23. desember 2014