Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. Tekjuskattshlutfall á árinu 2014 verður 22,86% af tekjuskattsstofni að 3.480.000 kr., 25,3% af tekjuskattsstofni frá 3.480.001 kr. að 9.415.428 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 9.415.429 kr. Meðalútsvar á árinu 2014 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,44%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2014 verður því 37,30% af tekjuskattsstofni að 3.480.000 kr., 39,74% af tekjuskattsstofni frá 3.480.001 kr. að 9.415.428 kr. og 46,24% af tekjuskattsstofni frá 9.415.429 kr. Sé tekjuskattsstofn annars samskattaðs aðila hærri en 9.415.428 kr. skal það sem umfram er skattlagt með 25,3% skatthlutfalli allt að helmingi þeirrar fjárhæðar sem tekjuskattsstofn þess tekjulægri er undir 9.415.428 kr., þó reiknast 25,3% skatthlutfall aldrei af hærri fjárhæð en 2.967.714 kr. við þessar aðstæður. Samkvæmt A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2014 vera 605.977 krónur, eða 50.498 krónur að meðaltali á mánuði. Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 27. desember 2013. F. h. r. Maríanna Jónasdóttir. Ingibjörg Helga Helgadóttir. |