Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 962/2014

Nr. 962/2014 30. október 2014
REGLUGERÐ
um (8.) breytingu á reglugerð nr. 106/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 um opinbert eftirlit til að staðfesta að lög um fóður og matvæli og reglur um heilbrigði og velferð dýra séu virt.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samn­inginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 116/2014, frá 28. júní 2014, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 702/2013 frá 22. júlí 2013 um umbreytingarráðstafanir vegna beitingar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar faggildingu opinberra rannsóknarstofa sem annast opinberar prófanir vegna tríkínu og um breytingu á reglugerð fram­kvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1162/2009. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, frá 25. september 2014, bls. 39.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og heldur gildi sínu til loka árs 2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. október 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

B deild - Útgáfud.: 31. október 2014