Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1284/2011

Nr. 1284/2011 29. desember 2011
REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2012.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2012 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tl. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning landbúnaðarskýrslu rekstrarársins 2012.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna á rekstrarreikningi landbúnaðarskýrslu. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2012 er sem hér segir:

kr.

Mjólk

78,00 pr. lítra

Egg

450,00 pr. kg

Kartöflur

66,00 pr. kg

Rófur

134,00 pr. kg

Lambakjöt

540,00 pr. kg

Kjöt af veturgömlu fé

358,00 pr. kg

Annað kjöt af sauðfé

248,00 pr. kg

Ungnautakjöt

577,00 pr. kg

Annað kjöt af nautgripum

381,00 pr. kg

Folaldakjöt

384,00 pr. kg

Annað kjöt af hrossum

158,00 pr. kg

Grísakjöt

403,00 pr. kg

Annað svínakjöt

284,00 pr. kg

Kalkúnar, endur og gæsir

545,00 pr. kg

Annað fuglakjöt

406,00 pr. kg

Fiskur

500,00 pr. kg

Reykjavík, 29. desember 2011

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2011