1. gr. Aftast í 3. gr. bætist við ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Ákvæði til bráðabirgða. Þrátt fyrir ákvæði stafliða e og f kýs stúdentaráð Háskóla Íslands tvo aðalmenn og tvo varamenn til setu í háskólaráði til tveggja ára fyrir tímabilið 1. júlí 2014 til 30. júní 2016, samkvæmt reglum sem stúdentaráð hefur sett þar um. 2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 130. gr.: 1. mgr. orðast svo: Til BS-prófs í rafmagns- og tölvuverkfræði. Til BS-prófs í mekatróník hátæknifræði og orku- og umhverfistæknifræði og fer kennslan fram á vettvangi Keilis. Til meistaraprófs, MS-prófs, í rafmagns- og tölvuverkfræði, rafmagnsverkfræði og tölvuverkfræði. Til doktorsprófs, Ph.D.-prófs, í rafmagns- og tölvuverkfræði, rafmagnsverkfræði og tölvuverkfræði.
5. mgr. orðast svo: Til BS-prófs í rafmagns- og tölvuverkfræði er krafist minnst 180 eininga. Á eftir 5. mgr. bætist við ný málsgrein, svohljóðandi: Til BS-prófs í mekatróník hátæknifræði og orku- og umhverfistæknifræði er krafist minnst 220 eininga. Nám í tæknifræðigreinum er aðgreint frá námi í rafmagns- og tölvuverkfræði og fer fram á öðrum vettvangi. Núverandi 6. mgr. orðast svo: Til MS-prófs er krafist 120 eininga náms að loknu BS-prófi í rafmagns- og tölvuverkfræði frá deildinni.
3. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 131. gr.: 1. málsliður 1. mgr. orðast svo: Kennslu til BS-prófs í rafmagns- og tölvuverkfræði skal haga þannig að stúdent geti lokið 180 eininga námi á þremur árum. Á eftir 2. málslið 1. mgr. bætast við tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Kennslu til BS-prófs í mekatróník hátæknifræði og orku- og umhverfistæknifræði skal haga þannig að stúdent geti lokið 220 eininga námi á þremur og hálfu ári. Hámarksnámstími til þess að ljúka BS-prófi í tæknifræði er tíu kennslumisseri frá því er stúdent var skrásettur í viðkomandi nám. Núverandi 4. málsliður 1. mgr. orðast svo: Kennslu til meistaraprófs í rafmagns- og tölvuverkfræði, rafmagnsverkfræði og tölvuverkfræði til 120 eininga skal haga þannig að stúdent geti lokið náminu á tveimur árum.
4. gr. Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 10. júní 2014. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |