Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 233/2014

Nr. 233/2014 4. mars 2014
REGLUGERÐ
um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 208/2013 um kröfur um rekjanleika að því er varðar spírur og fræ sem eru ætluð til framleiðslu á spírum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 220/2013, frá 13. desember 2013, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 208/2013 frá 11. mars 2013 um kröfur um rekjanleika að því er varðar spírur og fræ sem eru ætluð til framleiðslu á spírum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4, frá 23. janúar 2014, bls. 129.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt vegna matvæla í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. mars 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.

B deild - Útgáfud.: 6. mars 2014