1. gr. Með reglugerð þessari eru eftirtaldar heilbrigðisstofnanir sameinaðar og tekur sameiningin gildi 1. janúar 2009:
| a. | Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Vesturlands sameinast eftirtaldar stofnanir: | | | St. Franciskusspítali Stykkishólmi. Heilsugæslustöðin Búðardal. Heilsugæslustöðin Borgarnesi. Heilsugæslustöðin Grundarfirði. Heilsugæslustöðin Ólafsvík. | | b. | Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sameinast eftirtaldar stofnanir: | | | Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ. Heilbrigðisstofnunin Bolungarvík. | | c. | Undir nafninu Heilbrigðisstofnunin Blönduósi og Sauðárkróki sameinast eftirtaldar stofnanir: | | | Heilbrigðisstofnunin Blönduósi. Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki. | | d. | Undir nafninu Heilbrigðisstofnunin Dalvíkur- og Fjallabyggð sameinast eftirtaldar stofnanir: | | | Heilbrigðisstofnunin Siglufirði. Heilsugæslustöðin Dalvík. Heilsugæslustöðin Ólafsfirði. |
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009. Heilbrigðisráðuneytinu, 16. júlí 2008. Guðlaugur Þór Þórðarson. Vilborg Þ. Hauksdóttir. |