Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1164/2007

Nr. 1164/2007 27. nóvember 2007
AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi við Engjaveg og í II. áfanga Helgafellshverfis, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 7. nóvember 2007 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt eftirtaldar tvær breytingar á deiliskipulagi:

Breyting á „deiliskipulagi frá Reykjalundarvegi að Húsadal,“ sem felst einkum í því að Engjavegur styttist um u.þ.b. 40 m, en syðstu lóðirnar við hann fá aðkomu um akfæran stíg.

Breyting á deiliskipulagi 2. áfanga Helgafellshverfis, sem felst í því að sett er inn á skipulagið lóð fyrir spennistöð í suðurhorni lóðar nr. 10 við Efstaland.

Deiliskipulagsbreytingar þessar hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 27. nóvember 2007,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 12. desember 2007