Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1203/2012

Nr. 1203/2012 18. desember 2012
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um reikning fyrninga og vaxta vegna fjármögnunarleigu fólksbifreiða skv. 4. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Útreikningur frádráttarbærs hluta leigugreiðslna rekstrarárið 2012 vegna fjármögnunar­leigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 menn, þó að undanskildum leigubifreiðum, skal vera sem hér segir:

  1. Fyrningargrunnur telst vera kaupverð bifreiðar eins og það er ákveðið við kaup leigusala (fjármögnunarleigufyrirtækis) á viðkomandi bifreið að frádregnum áður fengnum fyrningum.
  2. Til frádráttar hjá leigutaka á rekstrarárinu 2012 telst 20% fyrning af fyrningar­grunni skv. 1. tölul. hér að framan, að viðbættum 5,9% vöxtum reiknuðum hlutfallslega miðað við upphaf eða lok leigutíma á árinu 2012. Vextir reiknast af fyrningargrunni.
  3. Fyrning skv. 2. tölul. hér að framan er heimil að fullu rekstrarárið 2012, hvort sem leigutímabilið hefst eða því lýkur á því ári.

Reykjavík, 18. desember 2012.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 31. desember 2012