Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 14/2014

Nr. 14/2014 10. janúar 2014
REGLUR
um skattmat vegna tekna manna tekjuárið 2014.

Eftirfarandi reglur skulu gilda um mat á hlunnindum til tekna og kostnaði til frádráttar frá tekjum vegna tekjuársins 2014, sbr. 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með áorðnum breytingum, sbr. og A-lið 1. mgr. 30. gr. þeirra laga og ákvæði í c-lið 6. gr. reglugerðar nr. 483/1994, um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi. Skattmat þetta gildir einnig við staðgreiðslu opinberra gjalda á árinu 2014 nema um sé að ræða tekjur sem undanþegnar eru staðgreiðslu samkvæmt reglugerð nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu.

Skattmatið tekur til hvers þess sem nýtur hlunninda eða er aðnjótandi gæða, sem telja ber til tekna skv. 7. gr. laga nr. 90/2003, óháð starfssambandi milli þess er lætur hlunnindi eða gæði af hendi og þess sem þeirra nýtur. Skiptir ekki máli hvort það sem meta skal til tekna er endurgjald fyrir vinnu eða er tilkomið með öðrum hætti. Þegar talað er um launamann eða starfsmann í reglum þessum skal það eftir því sem við á einnig taka til maka hans og barna, svo og hvers þess aðila sem nýtur viðkomandi hlunninda í krafti eignar eða stjórnaraðildar, vensla eða tengsla, við þann sem hlunnindin lætur í té.

1. Almennt um mat á hlunnindum.

Telja ber til tekna hvers konar gæði sem mönnum hlotnast og metin verða til peningaverðs og skiptir þá ekki máli hvaðan þau stafa eða í hvaða formi þau eru. Á það t.d. við um fatnað, fæði, húsnæði, hvers konar fríðindi, greiðslur í vörum eða afurðum, svo og framlög og gjafir sé verðmætið hærra en almennt gerist um tækifærisgjafir.

Þau gæði og hlunnindi, sem ekki hafa verið í krónum talin, skal meta til peningaverðs og telja þau til tekna á því verði. Skulu þau metin til tekna á gangverði eða markaðsverði á hverjum tíma nema við þau eigi sérstakt tekjumat, sbr. kafla 2 hér á eftir.

Séu hlunnindi, eða annað sem telja ber til tekna, látið af hendi gegn greiðslu sem er lægri en skattmatið eða gangverðið skal telja mismuninn til tekna.

2. Sérstakt tekjumat.

2.1 Ýmis starfstengd hlunnindi.

Öll hlunnindi og fríðindi sem launagreiðandi lætur starfsmanni í té til einkaþarfa eru lögð að jöfnu við laun til viðkomandi og ber að telja til tekna miðað við markaðsverð eða gangverð, þ.e. til tekna skal telja fjárhæð sem nemur þeim kostnaði sem launþeginn hefði þurft að leggja út fyrir í þessu sambandi, nema um hlunnindi eða fríðindi þessi gildi sérstakt matsverð samkvæmt skattmati þessu. Hér er átt við hlunnindi og fríðindi tengd starfinu, sem starfsmaður nýtur án þess að greiða fyrir þau fullt verð, hvort sem um er að ræða að launþeginn fái eitthvað til eignar, afnota, láns eða neyslu.

Ekki skal telja til tekna almennar kaffiveitingar starfsmanna á starfsstað, afnot þeirra af heilsubótaraðstöðu á starfsstað, fyrirbyggjandi heilbrigðisþjónustu og þátttöku í nám­skeiðum sem tengjast starfi þeirra beint

Ekki skal telja til tekna hlunnindi og fríðindi sem felast í árshátíð starfsmanna, starfs­manna­ferðum, jólagleði og sambærilegum samkomum og viðburðum, enda sé að jafnaði um að ræða viðburði sem standi öllum starfsmönnum launagreiðandans til boða og árlegur kostnaður af þeim nemi ekki hærri fjárhæð en 120.000 kr. á hvern starfs­mann. Hlunnindi og fríðindi af umræddum toga umfram 120.000 kr. skulu teljast starfs­manni til tekna, hvernig sem fyrirkomulagi á greiðslum launagreiðanda er háttað.

Sömu reglur gilda um framlög launagreiðanda til starfsmannafélaga sem nýtt eru til greiðslu á sams konar kostnaði og að framan greinir.

2.2 Fatnaður.

Telja skal til tekna á kostnaðarverði fatnað sem látinn er starfsmanni í té. Þetta á þó ekki við um einkennisfatnað sem starfsmönnum er ætlað að nota við störf sín, eða annan þann fatnað sem auðkenndur er eða merktur launagreiðanda, og einkum er nýttur vegna starfa í þágu hans.

Eigi skal reikna launþega til tekna nauðsynlegan öryggis- eða hlífðarfatnað sem launa­greiðandi afhendir honum til afnota við störf hans, þ.m.t. er sá öryggis- og hlífðar­fatnaður sem launagreiðendum er skylt skv. lögum, stjórnvaldsfyrirmælum og kjara­samn­ingum að afhenda launþegum án endurgjalds.

2.3 Bifreiðahlunnindi.

Almennt.

Færa skal launþega til tekna umráð hans yfir bifreið launagreiðanda.

Hafi launagreiðandi bifreið á leigu eða til láns og láti launþega hana í té til umráða skulu þau metin launþeganum til tekna á sama hátt og ef bifreiðin væri í eigu launa­greið­andans, sbr. það sem hér fer á eftir. Ekki skiptir máli í þessu sambandi hvort bifreið er tekin á t.d. rekstrar- eða fjármögnunarleigu eða á leigu frá bílaleigu.

Greiði launamaður launagreiðanda sínum sannanlega fyrir afnot bifreiðarinnar koma slíkar greiðslur til frádráttar tekjumatinu.

Ekki skal telja til skattskyldra bifreiðahlunninda launþega umráð og notkun á bifreiðum sem eru með sérútbúnu öryggiskerfi og staðsetningarbúnaði og sem jafnan er ekið af sérstökum bifreiðastjóra.

Full og ótakmörkuð umráð.

Láti launagreiðandi starfsmanni sínum í té fólksbifreið, þ.m.t. skutbifreið, jeppabifreið, eða aðra bifreið sem hægt er að hafa sambærileg not af, til fullra umráða skal meta þau starfsmanni til tekna án tillits til notkunar hans á bifreiðinni.

Hafi starfsmaður fleiri en eina bifreið frá launagreiðanda sínum til fullra eða ótak­markaðra umráða samtímis fyrir sig eða fjölskyldu sína skal reikna starfsmanninum til hlunn­inda umráð hans yfir hverri bifreið fyrir sig.

Ársumráð bifreiðar skulu metin til tekna sem hlutfall af verði þeirra sem hér segir:

 

Bifreið, sem tekin var í notkun á árunum 2012, 2013 eða 2014

26%

 

Bifreið, sem tekin var í notkun á árunum 2009, 2010 eða 2011

21%

 

Bifreið, sem tekin var í notkun á árunum 2008 eða fyrr

18%

Greiði starfsmaður sjálfur rekstrarkostnað bifreiðar sem hann hefur til umráða skal lækka hlutfall hlunninda um 6% af verði bifreiðarinnar eins og það er skilgreint, sbr. hér á eftir. Með rekstrarkostnaði í þessu sambandi er átt við eldsneytiskostnað, smurningu, þrif o.þ.h. Lækkun á hlunnindamati af þessum sökum verður aldrei meiri en 6% af verði bifreiðarinnar.

Bifreið sem flutt var inn notuð telst hafa verið tekin til notkunar á því ári sem hún var framleidd. Mánaðarleg hlunnindi teljast 1/12 af hlunnindum reiknuðum eins og að framan greinir fyrir hvern byrjaðan mánuð og skal við það miðað ef umráðin vara hluta úr ári.

Verð bifreiðar er í þessu sambandi skilgreint í bæklingnum bifreiðaskrá, RSK 6.03, sem gefinn er út árlega og er að finna á upplýsingavef ríkisskattstjóra, rsk.is, og miðast við staðgreiðsluverð samkvæmt verðlista á nýrri bifreið frá bifreiðaumboði ár hvert. Sækja skal verð bifreiðar í bifreiðaskrá þess árs þegar bifreiðin var tekin í notkun og margfalda með verðbreytingarstuðli viðkomandi árs, sbr. töflu í greindum bæklingi og upplýsingar á rsk.is, eða miða við staðgreiðsluverð nýrrar bifreiðar sömu tegundar á staðgreiðsluárinu 2014 reynist það lægra. Með nýrri bifreið er átt við bifreið sem keypt er ný og ónotuð frá bifreiðaumboði. Sé bifreið eigi til sölu hér á landi og eigi unnt að fá staðfestar upplýsingar um verð á henni skal miða við verð á sambærilegum bifreiðum. Í stað þess að sækja verð bifreiðar í bifreiðaskrá skal heimilt að miða verð til útreiknings á bifreiðahlunnindum við upphaflegt kaupverð viðkomandi bifreiðar eins og það er fyrst skráð í ökutækjaskrá hjá Samgöngustofu margfölduðu með verðbreytingarstuðli kaupárs, sbr. hér að framan.

Sé bifreið í sameign starfsmanns og launagreiðanda skal, í samræmi við framan­ritað, telja starfsmanni til hlunninda umráð þess hluta bifreiðarinnar sem er í eigu launa­greið­anda.

Eigendur fyrirtækja, framkvæmdastjórar þeirra og aðrir í sambærilegum störfum sem og stjórnarmenn félaga teljast ætíð hafa full og ótakmörkuð umráð yfir þeim fólksbifreiðum sem þeim eru látnar í té og þeir hafa til einkanota, þ.m.t. skutbifreiðum, jeppabifreiðum, eða öðrum þeim bifreiðum sem hægt er að hafa sambærileg not af.

Takmörkuð afnot.

Hafi starfsmaður haft afnot af bifreið launagreiðanda síns og honum er einungis heimilt að nota hana utan vinnutíma til aksturs milli heimilis og vinnustaðar og til einstakra tilfallandi afnota telst hann hafa takmörkuð afnot af bifreiðinni, enda sé hún að öðru leyti notuð í daglegum rekstri launagreiðanda. Takmörkuð afnot skulu metin til tekna miðað við 116 kr. á hvern ekinn kílómetra. Gögn um takmörkuð afnot skulu greinilega færð og vera aðgengileg skattyfirvöldum hvort sem er í bókhaldi launagreiðanda eða hjá starfsmanni. Sé um frekari afnot að ræða telst starfsmaður hafa full umráð bifreiðar eins og greint er frá hér að framan.

Þegar bifreið launagreiðanda er notuð til að koma starfsmönnum milli heimilis og vinnustaðar utan þess tíma sem almenningssamgöngur eru fyrir hendi og kjarasamningar kveða á um slíkt, skal ekki telja þann akstur til skattskyldra tekna starfsmanna. Við þessar aðstæður er heimilt að launþegi nýti bifreið þessa til aksturs milli heimilis síns og vinnustaðar, enda sé honum jafnframt gert að sækja/skila öðrum starfsmönnum sama launagreiðanda til og frá heimilum þeirra, við upphaf eða lok vinnudags.

2.4 Önnur vélknúin ökutæki

Færa skal launþega til tekna umráð hans yfir öðrum vélknúnum ökutækjum launa­greið­anda en bifreiðum, s.s. mótorhjólum, torfæruhjólum, vélsleðum, fjórhjólum og öðrum sambærilegum tækjum. Sé um slík umráð að ræða teljast þau ætíð full og ótak­mörkuð.

Hafi launagreiðandi vélknúið ökutæki á leigu eða til láns og láti launþega það í té til umráða skulu þau metin launþeganum til tekna á sama hátt og ef tækið væri í eigu launagreiðandans, sbr. það sem hér fer á eftir.

Greiði launamaður launagreiðanda sínum sannanlega fyrir afnot tækisins koma slíkar greiðslur til frádráttar tekjumatinu.

Meta skal hlunnindin sem hlutfall af kaupverði tækis í hendi eiganda margfölduðu með verðbreytingarstuðli kaupárs þess, sbr. töflu í bifreiðaskrá, RSK 6.03, og upplýsingar á rsk.is, eða miða við staðgreiðsluverð nýs tækis sömu tegundar á staðgreiðsluárinu 2014 reynist það lægra. Sé tæki eigi til sölu hér á landi og eigi unnt að fá staðfestar upp­lýsingar um verð á því skal miða við verð á sambærilegu tæki.

Ársumráð tækis skulu metin til tekna sem hlutfall af verði þess sem hér segir:

 

Tæki, sem tekið var í notkun á árunum 2012, 2013 eða 2014

26%

 

Tæki, sem tekið var í notkun á árunum 2009, 2010 eða 2011

21%

 

Tæki, sem tekið var í notkun á árunum 2008 eða fyrr

18%

Greiði starfsmaður sjálfur rekstrarkostnað tækis sem hann hefur til umráða skal lækka hlutfall hlunninda um 6% af hlunnindamatsverði þess, sbr. að framan. Með rekstrar­kostnaði í þessu sambandi er átt við eldsneytiskostnað, smurningu, þrif o.þ.h. Lækkun á hlunnindamati af þessum sökum verður aldrei meiri en 6% af verði tækisins.

2.5 Hlunnindi af notkun einkaflugvéla.

Telja skal til skattskyldra hlunninda starfsmanns notkun flugvéla (vélknúinna flugtækja) sem launagreiðandi hefur forráð yfir, þ.e. er í eigu launagreiðanda eða aðila honum tengdum, eða hann hefur á leigu frá skyldum eða óskyldum aðila, ef ferð telst vera í einkaþágu starfsmanns, fjölskyldu hans eða annarra aðila á hans vegum. Orlofs- og skemmtiferðir og ferðir sem farnar eru vegna viðburða sem ekki tengjast með beinum hætti starfi í þágu launagreiðanda teljast vera í einkaþágu. Ferðir til og frá starfsstöðvum launagreiðanda bæði innanlands og utan teljast ekki í einkaþágu starfsmanns í þessu sambandi.

Meta skal hlunnindi þessi miðað við 200.000 kr. á hvern byrjaðan flugtíma. Með flugtíma í þessu sambandi er átt við þann tíma sem ferð tekur frá því flugvél fer frá stæði á flugvelli þar til hún hefur verið stöðvuð á stæði að ferð lokinni. Sé flugvél látin bíða eftir farþega milli ferða bætist sá tími við flugtíma. Sé flugvél flogið til baka án farþega bætist sá flugtími einnig við flugtíma til útreiknings á hlunnindum.

Það er á ábyrgð launagreiðanda að fylgjast með notkun slíkra flugvéla sem hér um ræðir og reikna hlunnindi af notkun þeirra, eftir því sem efni standa til, og halda eftir staðgreiðslu af þeim hlunnindum, sbr. 1. tölul. 5. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og 1. gr. reglugerðar nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu, með áorðnum breytingum.

2.6 Samgöngugreiðslur.

Ekki skal telja til skattskyldra hlunninda greiðslu launagreiðanda á kostnaði launþega vegna ferða milli heimilis og vinnustaðar og/eða vegna ferða í þágu launagreiðanda, ef nýttar eru almenningssamgöngur eða vistvænn samgöngumáti að hámarki samtals 7.000 kr. á mánuði og að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum:

  1. Undirritaður sé formlegur samningur milli launagreiðanda og launþega um nýtingu á almenningssamgöngum eða vistvænum ferðamáta vegna ferða launþegans til og frá vinnu sinnar og/eða vegna ferða í þágu launagreiðanda.
  2. Með vistvænum samgöngumáta er átt við að nýttur sé annar ferðamáti en með vélknúnum ökutækjum samkvæmt skilgreiningu umferðarlaga, t.d. reiðhjól eða ganga.
  3. Séu framangreind skilyrði ekki uppfyllt er alltaf um að ræða skattskyld hlunnindi án frádráttar ef greiðsla er vegna ferða launþega til og frá vinnu.

2.7 Fæði.

Fæði, sem launagreiðandi lætur starfsmanni og/eða fjölskyldu hans í té endurgjaldslaust, skal metið starfsmanninum til tekna sem hér segir:

 

Morgunverður

300 kr.

 

Hádegisverður eða kvöldverður

450 kr.

 

Fullt fæði á dag

1.200 kr.

Ef um er að ræða börn yngri en 12 ára er heimilt að lækka framangreindar fjárhæðir um fjórðung.

2.8 Íbúðarhúsnæði og orlofshús.

Endurgjaldslaus afnot af íbúðarhúsnæði og orlofshúsnæði sem launagreiðandi lætur starfsmanni í té til umráða skulu metin starfsmanninum til tekna. Skal matið vera sem hér segir:

Árleg afnot skulu metin til tekna sem jafngildi 5% af fasteignamati íbúðarhúsnæðisins (þ.m.t. bílskúr og önnur sérstaklega metin mannvirki á lóð íbúðarhúsnæðis) og lóðar og margfölduð með gildistölu þess svæðis þar sem húsnæðið er sbr. eftirfarandi:

Gildistala

Staðsetning (sveitarfélagsnúmer innan sviga)

1,0

Reykjavíkurborg (0000), Seltjarnarneskaupstaður (1100), Mosfellsbær (1604), Kópavogsbær (1000), Garðabær (1300), Hafnar­fjarðar­kaupstaður (1400).

  

0,80

Grindavíkurbær (2300), Sandgerðisbær (2503), Sveitarfélagið Garður (2504), Reykjanesbær (2000), Sveitarfélagið Vogar (2506), Akranes­kaupstaður (3000), Akureyrarkaupstaður (6000), Sveitar­félagið Árborg (8200), Hveragerðisbær (8716), Sveitarfélagið Ölfus (8717).

  

0,70

Önnur sveitarfélög.

Endurgjaldslausa orkunotkun (rafmagn og hita) skal telja til tekna á kostnaðarverði.

Fylgi starfi launamanns kvöð um búsetu í húsnæði, sem launagreiðandi lætur honum í té, er ríkisskattstjóra heimilt að lækka mat húsnæðishlunninda við álagningu opinberra gjalda ef launþegi telst ekki nýta húsnæðið að fullu. Íbúðarhúsnæði allt að 150 m² að viðbættum 5 m² fyrir hvern íbúa umfram 6 telst fullnýtt.

Eigi skal meta til tekna afnot af húsnæði í verbúðum eða vinnubúðum þar sem launa­maður dvelur um takmarkaðan tíma í þjónustu launagreiðanda.

Endurgjaldslaus afnot starfsmanns af orlofshúsnæði frá launagreiðanda skulu talin til tekna með 3.000 kr. fyrir hvern dag, sem starfsmaður eða fjölskyldumeðlimir hans hafa húsnæðið til afnota, umfram 10 daga á ári. Afnot í allt að 10 daga á ári teljast ekki til tekna.

Með orlofshúsnæði er í þessu sambandi átt við sumarbústaði og annað það húsnæði sem ætlað er til slíkrar notkunar, þ.m.t. íbúðir í þéttbýli, sem og hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og aðrir tengivagnar.

Ekki skal telja til tekna starfsmanns greiðslu frá launagreiðanda, eða eftir atvikum stéttar­félagi, sem ætlað er að standa straum af kostnaði við leigu á orlofshúsnæði eða með öðrum hætti til greiðslu á orlofsdvöl, að því marki sem slík greiðsla fer ekki yfir 50.000 kr. á ári. Skilyrði er að starfsmaður leggi fram fullgilda og óvefengjanlega reikn­inga fyrir greiðslu á kostnaði vegna orlofsdvalar þessarar.

2.9 Heilsurækt.

Ekki skal telja til tekna starfsmanns greiðslu frá launagreiðanda, eða eftir atvikum stéttarfélagi, sem ætlað er að standa straum af kostnaði við íþróttaiðkun og aðra heilsurækt að því marki sem slík greiðsla fer ekki yfir 50.000 kr. á ári. Skilyrði er að starfsmaður leggi fram fullgilda og óvefengjanlega reikninga fyrir greiðslu á viðkomandi kostnaði. Með kostnaði við íþróttaiðkun og heilsurækt er átt við greiðslu á aðgangi að líkamsræktarstöðvum, sundlaugum og skíðasvæðum, greiðslu á æfingagjöldum í íþrótta­sali og félagsgjöldum í golfklúbba sem og þátttökugjöld vegna annarrar hreyfingar sem stunduð er með reglubundnum hætti. Einnig fellur hér undir kostnaður við aðra heilsu­rækt eins og t.d. jóga og annar sambærilegur kostnaður, þ.m.t. kostnaður vegna endur­hæfingar.

2.10 Lán.

Telja skal til skattskyldra tekna mismun á vöxtum af lánum sem fengin eru hjá launa­greiðanda, eða fyrir milligöngu hans, ef þeir eru lægri en þeir vextir sem birtir eru af Seðla­banka Íslands í samræmi við 10. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtrygg­ingu. Miða skal við stöðu láns í byrjun hvers mánaðar og almenna vexti þess mánaðar eins og þeir eru birtir í töflu á heimasíðu Seðlabanka Íslands, „bankavextir og dráttar­vextir“, og reikna staðgreiðslu opinberra gjalda á þann hátt mánaðarlega. Eftir atvikum skal miða við almenna vexti af verðtryggðum eða óverðtryggðum lánum. Sama á við um greiðslufresti og afborganir af kaupum á hlutabréfum eða öðrum eignum.

3. Frádráttur vegna ökutækjastyrks og dagpeninga.

3.1 Frádráttur kostnaðar á móti ökutækjastyrk.

Frá ökutækjastyrk, sem launþegi skal færa til tekna, heimilast til frádráttar tiltekinn kostnaður á hvern ekinn kílómetra í þágu launagreiðanda. Aldrei leyfist hærri fjárhæð til frádráttar en talin er til tekna sem ökutækjastyrkur. Skilyrði fyrir frádrættinum er að fyrir liggi skriflegur afnotasamningur þar sem aksturserindum er skilmerkilega lýst og að færð hafi verið akstursdagbók eða akstursskýrsla, þ.m.t. á rafrænu formi, þar sem skráð er hver ferð, dagsetning, ekin vegalengd, aksturserindi, nafn og kennitala launamanns og einkennisnúmer viðkomandi ökutækis, sbr. reglugerð nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu. Einnig þarf að liggja fyrir hver heildarakstur bifreiðar er á hverju ári. Færa skal þessi gögn reglulega og skulu þau vera aðgengileg skattyfirvöldum þegar þau óska þess.

Til frádráttar heimilast fjárhæð sem tekur mið af heildarakstri í þágu launagreiðanda og því hvort greitt hefur verið fyrir almennan akstur (almennt gjald), akstur á vegum þar sem ekki er bundið slitlag (sérstakt gjald) eða akstur utan vega eða á vegslóðum sem ekki eru færir fólksbílum (torfærugjald). Gera þarf fullnægjandi grein fyrir því að starfslegar forsendur fyrir greiðslu sérstaks gjalds og torfærugjalds séu uppfylltar. Frádráttur er ákvarðaður miðað við hver heildarakstur hefur verið í þágu launagreiðanda og þá fjárhæð sem gildir á því akstursbili, sbr. töflu að neðan. Frádráttur verður þó aldrei lægri fjárhæð en orðið hefði ef akstur hefði numið hámarksakstri samkvæmt aksturs­bilinu fyrir neðan. Hafi akstur t.d. numið 1.050 km skal miða frádrátt við 114 kr. á hvern km, en þó aldrei lægri fjárhæð en 116.000 kr. (þ.e. 1.000 km margfaldað með 116 kr.). Eftirfarandi fjárhæðir heimilast til frádráttar á móti greiðslum frá launagreiðanda vegna aksturs í hans þágu miðað við hvern ekinn kílómetra:

Akstur í þágu launagreiðanda

Frádráttur vegna almenns aksturs á hvern ekinn km

Frádráttur vegna sérstaks aksturs á hvern ekinn km

Frádráttur vegna torfæruaksturs á hvern ekinn km

0-1.000 km

116 kr.

133 kr.

168 kr.

1.001-2.000 km

114 kr.

131 kr.

165 kr.

2.001-3.000 km

112 kr.

129 kr.

162 kr.

3.001-4.000 km

98 kr.

113 kr.

142 kr.

4.001-5.000 km

96 kr.

110 kr.

139 kr.

5.001-6.000 km

94 kr.

108 kr.

136 kr.

6.001-7.000 km

92 kr.

106 kr.

133 kr.

7.001-8.000 km

90 kr.

104 kr.

131 kr.

8.001-9.000 km

88 kr.

101 kr.

128 kr.

9.001-10.000 km

86 kr.

99 kr.

125 kr.

10.001-11.000 km

82 kr.

94 kr.

119 kr.

11.001-12.000 km

80 kr.

92 kr.

116 kr.

12.001-13.000 km

78 kr.

90 kr.

113 kr.

13.001-14.000 km

76 kr.

87 kr.

110 kr.

14.001-15.000 km

74 kr.

85 kr.

107 kr.

15.001 og meira

68 kr.

78 kr.

99 kr.

Akstur launamanns á milli heimilis hans og venjulegs vinnustaðar telst ekki í þágu launagreiðanda. Aki launamaður hins vegar beint frá heimili sínu til annars vinnustaðar en hins venjulega að beiðni launagreiðanda getur verið heimilt að færa frádrátt á móti greiðslum fyrir slík afnot ökutækis, enda séu þau afnot af ökutæki launamanns beinlínis tengd starfi hans en ekki fólgin í því einu að komast á vinnustað.

3.2 Frádráttur á móti dagpeningum.

Frádráttur á móti dagpeningum sem launþegi hefur fengið greidda frá launagreiðanda sínum er heimill, enda hafi dagpeningarnir verið greiddir vegna tilfallandi ferða á vegum launagreiðandans utan venjulegs vinnustaðar og launþeginn sannanlega greitt gistingu samkvæmt reikningi og fæði og annan ferðatengdan kostnað, svo sem fargjöld að og frá flugvöllum. Frádrátturinn er jafnframt háður því skilyrði að fyrir liggi í bókhaldi launagreiðanda, sem og hjá launþega, gögn um tilefni ferðar og fjölda dvalardaga, fjárhæð ferðapeninga eða dagpeninga, svo og nafn og kennitala launþega. Fái launþegi greidda dagpeninga frá lögaðila þar sem hann, maki hans, barn eða nákomnir ættingjar hafa ráðandi stöðu þurfa ætíð jafnframt að liggja fyrir reikningar um kostnað vegna ferðalaga í þágu launagreiðandans. Frádráttur getur aldrei numið hærri fjárhæð en þeim kostnaði nemur sem sannað er að sé ferðakostnaður í þágu launagreiðandans.

Að uppfylltum framangreindum skilyrðum er leyfilegur frádráttur frá greiddum dag­peningum á árinu 2014 sem hér segir:

 

Frádráttur á móti dagpeningum innanlands.

kr.  

 

Fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring

22.355

 

Fyrir gistingu í einn sólarhring

11.555

 

Fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag

10.800

 

Fyrir fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag

5.400

Frádráttur á móti dagpeningum erlendis. (Í SDR)

  

Almennir dagpeningar

Dagpeningar vegna þjálfunar,
náms eða eftirlitsstarfa

        
  

Gisting

Annað

Samtals

Gisting

Annað 

Samtals

        

Flokkur 1:

SDR

187

125

312

120

80 

200

Moskva, Singapúr

       

New York borg,

       

Tókýó,Washington DC

       
        
        

Flokkur 2:

SDR

159

106

265

102

67 

169

Dublin, Istanbúl

       

Japan (nema Tókýó),

       

London, Lúxemborg

       

Mexíkóborg, Seúl

       
        

Flokkur 3:

SDR

141

94

235

90

60 

150

Amsterdam, Aþena,

       

Bandaríkin (nema New

       

York borg og Wash-

       

ington DC), Helsinki

       

Barselóna, Brussel,

       

Genf, Hong Kong,

       

Kanada, Kaupmannahöfn,

       

Madrid, Osló, París,

       

Róm, Stokkhólmur, Vín

       
        

Flokkur 4:

SDR

125

83

208

80

54 

134

Annars staðar

       

Sé dvalið skemur en 3 vikur á sama stað er heimilt að draga frá óskerta almenna dagpeninga. Sé dvalið 3 vikur eða lengur á sama stað er heimilt að draga frá óskerta almenna dagpeninga fyrstu vikuna en síðan þjálfunar-, náms- eða eftirlitsdagpeninga. Fari dvöl erlendis fram úr 3 mánuðum skal frádráttur vegna þjálfunar-, náms- og eftirlitsdagpeninga lækka um fjórðung þann tíma sem dvalið er lengur en 3 mánuði.

Hafi gisting launþega verið greidd samkvæmt reikningi er honum einungis heimilt að draga fjárhæð samsvarandi „Annað“ frá fengnum dagpeningum.

Hafi starfsmaður fengið greidda dagpeninga fyrir samfellda dvöl 30 daga eða lengur skulu viðmiðunarfjárhæðir hér að framan lækka um 10 SDR fyrir hvern dag sem dagpeningagreiðslur fara fram yfir 30 daga samfellt. Gildir það bæði varðandi almenna dagpeninga erlendis og dagpeninga vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa.

Frá tekjum manna af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi er heimilt, í stað þess að ferðakostnaður annar en gisti- og fæðiskostnaður erlendis sé dreginn frá samkvæmt reikningi, að draga frá fasta fjárhæð, sem nemur 30% af þeim hluta dagpeninga, sbr. framangreint, sem er vegna annars kostnaðar en gistingar.

Frádráttur vegna gistingar og annars í SDR á dag á móti dagpeningum erlendis verður sem hér segir ef dvalið er 3 vikur eða lengur:

 

Dagur 1 - 7

Dagur 8 - 30

Dagur 31 - 3 mánuðir

Á dag umfram
3 mánuði

Flokkur 1

312

200

190

143

Flokkur 2

265

169

159

119

Flokkur 3

235

150

140

105

Flokkur 4

208

134

124

  93

3.3 Vinna erlendis.

Sé dvöl launþega erlendis vegna tímabundinna almennra starfa þar á vegum íslensks launagreiðanda eiga reglur í tölulið 3.2 um frádrátt á móti dagpeningum vegna ferðalaga ekki við en honum er þá heimilt að draga frá sérgreindum greiðslum, sem hann kann að hafa fengið vegna uppihalds, fjárhæð sem nemur 30 SDR á dag allt að einu ári, í stað þess að færa til frádráttar fæðiskostnað samkvæmt reikningi. Skiptir ekki máli í þessu sambandi þó launþegi komi í stuttar heimsóknir hingað til lands á umræddu tímabili.

4. Frádráttur vegna fósturs barna.

Ef framteljandi hefur fengið greiðslur vegna barna sem sett eru í fóstur hjá honum af barnaverndarnefnd eða meðferðarstofnunum ber að tekjufæra þær greiðslur. Færa má til frádráttar sannanlegan kostnað sem beint tengist þessum greiðslum. Einnig má færa, í stað sannanlegs kostnaðar, frádrátt sem svarar til tvöfalds barnalífeyris vegna hvers barns, en þó aldrei hærri fjárhæð en greiðslunum nemur. Þessi regla á þó ekki við þegar um er að ræða reglubundna starfsemi sem felst í að taka börn í fóstur frá barna­verndarnefnd eða meðferðarstofnunum. Þá skal telja greiðslur til tekna sem rekstrar­tekjur og rekstrarkostnað til frádráttar eftir almennum reglum þar um.

5. Frádráttur vegna dagvistunar eða sumardvalar barna.

Greiðslur vegna dagvistunar barna og sumardvalar á að gera upp sem rekstrartekjur. Til frádráttar má færa rekstrarkostnað eftir almennum reglum þar um. Þó má í stað frádráttar sem byggist á sannanlegum kostnaði færa til frádráttar 190 kr. fyrir hvern veittan morgunverð eða síðdegishressingu og 380 kr. fyrir hvern veittan hádegis- eða kvöldverð. Vegna 12 ára barna og eldri er þó heimilt að færa til frádráttar 250 kr. fyrir hvern veittan morgunverð eða síðdegishressingu og 500 kr. fyrir hvern hádegisverð eða kvöldverð. Slíkur frádráttur má þó aldrei vera hærri en innheimt var fyrir fæði sam­kvæmt gjaldskrá.

Í stað sannanlegs viðhaldskostnaðar húsnæðis og húsbúnaðar, kostnaðar vegna hrein­lætis­vara, föndurvara, bóka, bifreiðakostnaðar, gæsluvallagjalda o.þ.h. má færa til frá­dráttar á móti öðrum tekjum en vegna fæðissölu, 25% af þeim tekjum. Ef um sumar­dvöl er að ræða má færa til frádráttar 20% af tekjum án fæðissölu, enda sé um gist­ingu að ræða. Slíkur frádráttur má þó aldrei vera hærri fjárhæð en innheimt er vegna þess­ara liða sam­kvæmt gjaldskrá.

6. Frádráttur hjá stuðningsfjölskyldum fatlaðra barna.

Greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna teljast að fullu til skattskyldra tekna en á móti má færa beinan kostnað vegna umönnunar og dvalar barnanna. Í stað sannanlegs kostnaðar má færa frádrátt eftir sömu reglum og samkvæmt kafla 5 að framan. Sé um kostnað að ræða sem leiðir af sérþörfum barnsins vegna fötlunar má færa þann kostnað til frádráttar, auk frádráttar samkvæmt skattmati þessu, enda sé gerð sérstök grein fyrir honum.

7. Frádráttur vegna vistunar aldraðra og öryrkja.

Greiðslur vegna vistunar aldraðra eða öryrkja í heimahúsum teljast að fullu til skatt­skyldra tekna en á móti má færa beinan kostnað sem af vistuninni leiðir. Í stað sannan­legs kostnaðar er heimilt að færa til frádráttar á móti greiðslum fjárhæð sem svarar til tvöfalds ellilífeyris (grunnlífeyris), en þó aldrei hærri fjárhæð en nemur greiðsl­unum. Þessi regla á þó ekki við ef um er að ræða atvinnurekstur. Þá skal telja greiðslur til tekna sem rekstrartekjur og rekstrarkostnað til frádráttar eftir almennum reglum þar um.

8. Fæðisfrádráttur hjá launagreiðanda.

Launagreiðendur sem ekki færa sérreikning yfir fæðiskostnað launþega sinna mega draga frá tekjum sínum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi 1.121 kr. fyrir hvern heilan fæðisdag sem þeir láta launþegum sínum í té fæði án endurgjalds. Sama gildir um fæði sem launagreiðandi lætur fjölskyldu launþegans í té án endurgjalds, enda séu hlunn­indi þessi talin launþega til tekna, sbr. kafla 2.7.

Reykjavík, 10. janúar 2014.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 13. janúar 2014