Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 4/2010

Nr. 4/2010 7. júní 2010
AUGLÝSING
um upplýsingaskiptasamning og tvísköttunarsamninga við Cayman-eyjar.

Samningur milli ríkisstjórnar Íslands og stjórnvalda á Cayman-eyjum um upplýsingar um skattamál, sem gerður var í Stokkhólmi 1. apríl 2009, öðlaðist gildi 30. maí 2010. Samningur til að komast hjá tvísköttun einstaklinga, samningur til að komast hjá tvísköttun fyrirtækja sem reka skip eða loftför í flutningum á alþjóðaleiðum og samningur um aðgang að framkvæmd gagnkvæms samkomulags í tengslum við leiðréttingu á hagnaði tengdra fyrirtækja, sem gerðir voru í París 17. júní 2009, öðluðust gildi 30. maí 2010.

Samningurinn um upplýsingar um skattamál er birtur sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari, samningurinn til að komast hjá tvísköttun einstaklinga sem fylgiskjal 2, samningurinn til að komast hjá tvísköttun fyrirtækja sem reka skip eða loftför í flutningum á alþjóðaleiðum sem fylgiskjal 3 og samningurinn um aðgang að framkvæmd gagnkvæms samkomulags í tengslum við leiðréttingu á hagnaði tengdra fyrirtækja sem fylgiskjal 4.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 7. júní 2010.

Össur Skarphéðinsson.

Einar Gunnarsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 30. desember 2010