Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1068/2014

Nr. 1068/2014 24. nóvember 2014
SAMÞYKKT
um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar.

I. KAFLI

Um skipan bæjarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.

1. gr.

Skipan bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar er skipuð sjö fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.

2. gr.

Sjálfstætt stjórnvald.

Grindavíkurbær er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni bæjar­stjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.

3. gr.

Verkefni sveitarfélagsins.

Grindavíkurbær annast þau lögmæltu verkefni sem honum eru falin í lögum, sbr. og leið­bein­andi auglýsingu frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála.

Grindavíkurbær vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.

Grindavíkurbæ er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa hans, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.

II. KAFLI

Um bæjarstjórn.

4. gr.

Hlutverk bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, með síðari breytingum, annarra laga og samþykkt þessari.

Bæjarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.

5. gr.

Verkefni bæjarstjórnar.

Meðal verkefna bæjarstjórnar er að:

  1. sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé við­eig­andi reglum í störfum sveitarfélagsins,
  2. kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, bæjar­ráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga og að ráða lög­giltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endur­skoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga,
  3. setja bæjarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga,
  4. ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins, ráða bæjarstjóra, sbr. 54. gr. sveitar­stjórnar­laga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna,
  5. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins og stofnana, setja starfsemi sveitar­félagsins reglur, samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur,
  6. fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga,
  7. bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar sveitarfélagsins til lengri tíma,
  8. hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga, sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga,
  9. veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um mál­efni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitar­félög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga,
  10. bæjarstjórn staðfestir erindisbréf fyrir nefndir, ráð og stjórnir þar sem kveðið er á um hlutverk þeirra, valdsvið, starfshætti og framsal til fullnaðarákvörðunar og starfs­hætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjar­stjórnar.

6. gr.

Ný bæjarstjórn tekur til starfa.

Nýkjörin bæjarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag og heldur fráfarandi bæjarstjórn umboði sínu fram að því, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosningar til sveitarstjórna. Nýkjörin bæjarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarð­ana um málefni bæjarstjórnarinnar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.

Sá fulltrúi í nýkjörinni bæjarstjórn sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.

Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.

7. gr.

Kjör forseta og varaforseta bæjarstjórnar.

Á fyrsta fundi kýs bæjarstjórn forseta og tvo varaforseta og skal kjörtímabil þeirra vera hið sama og bæjarstjórnar.

Njóti forseti eða varaforseti ekki lengur stuðnings bæjarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef forseti eða varaforseti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu forseta og varaforseta til ráðuneytis þegar að því loknu.

Sá telst rétt kjörinn forseti sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjar­stjórn.

Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meirihluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði.

Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.

Þegar að lokinni kosningu forseta skal kjósa fyrsta og annan varaforseta til að gegna, í þeirri röð, störfum forseta í forföllum hans. Skal kosning þeirra vera hlutfallskosning, enda sé ekki full samstaða um annað innan bæjarstjórnar.

III. KAFLI

Fundir bæjarstjórnar og fundarsköp.

8. gr.

Fundir bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar heldur reglulega fundi bæjarstjórnar að jafnaði síðasta þriðjudag í mánuði kl. 17 í fundarsal bæjarstjórnar að Víkurbraut 62.

Aukafund skal halda þegar forseti eða bæjarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur bæjarstjórnarfulltrúa óskar þess.

Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi bæjarstjórnar á undan.

Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulega fundi bæjarstjórnar vegna sumarleyfis.

9. gr.

Boðun bæjarstjórnarfunda.

Fundarboð, ásamt dagskrá og fylgigögnum sem eru nauðsynleg til að bæjarfulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála, skal berast bæjarfulltrúum ekki síðar en tveimur sólar­hringum fyrir fund. Forseti bæjarstjórnar boðar bæjarstjórnarfund í samráði við bæjar­stjóra.

Heimilt er að senda fundarboð (dagskrá) rafrænt til bæjarfulltrúa, aðalmanna og vara­manna, með tölvupósti. Fundarboðið og dagskrá ásamt fylgigögnum, er þá aðgengi­legt rafrænt í gegnum aðgang kjörinna fulltrúa inn á fundargátt sveitarfélagsins. Heimilt er að boða fundi bæjarráðs og fastanefnda rafrænt með sama hætti og boðun funda bæjarstjórnar.

Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund. Fundarboð vegna aukafundar skal berast bæjarfulltrúum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund. Fundarboðun aukafunda fer að öðru leyti fram á sama hátt og við boðun reglulegra funda.

10. gr.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar.

Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar forseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, svo og ráðningu bæjarstjóra og helstu stjórnenda sveitarfélagsins og endurskoðenda þess.
  2. Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins.
  3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
  4. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri eða forseti ákveða að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.

Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar skriflega eða með rafrænum hætti þremur sólar­hringum fyrir fund til þess að unnt sé að taka það á dagskrá.

11. gr.

Tilkynning til íbúa um fundi bæjarstjórnar.

Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórn ákvörðun um hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti.

Íbúum sveitarfélagsins skal kynnt með auglýsingu á vefsíðu sveitarfélagsins um fyrir­hugaða fundi bæjarstjórnar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um bæjar­fulltrúa, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.

12. gr.

Opnir fundir bæjarstjórnar.

Fundir bæjarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Bæjarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar og skal tillagan afgreidd án umræðu.

Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélagsins séu viðs­taddir.

13. gr.

Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Bæjarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur bæjarfulltrúa sé við­staddur á fundi.

Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæða­greiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.

14. gr.

Tvær umræður í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:

  1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráð­herra.
  2. Staðfestingu ársreiknings.
  3. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meirihluta þess.
  4. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Þá skal bæjarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjár­hags­áætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.

15. gr.

Fundarsköp.

  1. Fundarstjórn. Forseti stjórnar umræðum á fundum bæjarstjórnar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Hann sér um að fundargerðir séu færðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta.
    Forseti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum bæjarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar.
  2. Vald forseta bæjarstjórnar. Skylt er bæjarfulltrúa að lúta valdi forseta í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu.
    Ef bæjarfulltrúi ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal forseti víta hann. Ef bæjarfulltrúi er víttur tvisvar á sama fundi getur forseti lagt til við bæjarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
    Ef bæjarfulltrúi hlýðnast ekki úrskurði forseta eða almenn óregla kemur upp á fundi skal forseti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi. Ef áheyrandi á bæjarstjórnarfundi raskar fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal.
    Leyfi forseta þarf til að taka upp hjóð og myndir í fundarsal bæjarstjórnar.
  3. Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema bæjarstjórn eða forseti ákveði að önnur röð skuli höfð. Forseti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum.
    Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa þau afbrigði.
  4. Málfrelsi bæjarstjóra. Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn.
  5. Málfrelsi bæjarfulltrúa. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar. Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða bæjarstjóra eða framsögumann svo og bæjarfulltrúa sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar. Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður forseti í hvaða röð þeir tala. Bæjarfulltrúi skal rísa á fætur þegar hann flytur mál sitt nema forseti leyfi annað.
  6. Ávarp ræðumanns. Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta. Bæjarfulltrúi skal ávarpa einstaka bæjarfulltrúa með fullu nafni. Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða. Ekki má lesa prentað mál nema forseti leyfi.
  7. Hve oft má tala. Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.
  8. Ræðutími. Ef forseti telur umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða að umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál meira en svo að hún standi skemur en í tvær klukkustundir ef einhver sveitar­stjórnar­fulltrúi kveður sér hljóðs.
  9. Tillögur og afgreiðsla. Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðauka­tillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp. Forseti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað.
  10. Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í bæjarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
  11. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Bæjarfulltrúi greiðir atkvæði úr sæti sínu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæða­greiðslunnar. Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæða­greiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
    Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur fulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
    Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir.
  12. Kosningar. Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn, skv. 43. gr. sveitar­stjórnar­laga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör. Bæjarstjórn ber að hafa í huga ákvæði 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga varðandi kynja­hlutfall.

16. gr.

Ritun fundargerða.

  1. Fundargerðir. Fundargerðir bæjarstjórnarfunda skal rita og færa í gerðabók í sam­ræmi við fundarsköp bæjarstjórnar.
    1. Á fundum fastanefnda, skv. samþykkt um stjórn sveitarfélagsins, annarra nefnda, stjórna og ráða á vegum sveitarfélagsins skal rita fundargerðir og skulu þær skráðar með sams konar hætti og fundargerðir bæjarstjórnar, sbr. 1. mgr.
    2. Sviðsstjórar eru að jafnaði fundarritarar ráða og nefnda, en ráð og nefndir geta ráðið sér sérstakan fundarritara úr starfsmannahópi sveitarfélagsins.
  2. Gerðabók. Fundargerðir bæjarstjórnar, fastanefnda, annarra nefnda, stjórna og ráða skal rita í gerðabók sem skal vera innbundin með tölusettum blaðsíðum.
  3. Efni fundargerða. Eftirfarandi atriði eiga að koma fram í fundargerðum bæjar­stjórnar, fastanefnda, annarra nefnda, stjórna og ráða á hennar vegum skv. samþykkt um stjórn sveitarfélagsins:
    1. Númer fundar og heiti nefndar (bæjarstjórnar, fræðslunefndar o.s.frv.).
    2. Fundardagur, upphaf fundar (tími) og fundarstaður.
    3. Nöfn viðstaddra bæjarfulltrúa, nefndarmanna, varamanna og fyrir hverja þeir sitja og eftir atvikum annarra sem fundinn sátu.
    4. Dagskrármál sem tekin eru fyrir á fundinum, málsnúmer, dagsetning erinda, nöfn aðila, meginefni og niðurstaða þeirra.
    5. Skrá skal í fundargerð víki bæjarfulltrúi eða nefndarmaður sæti vegna van­hæfis. Skrá skal í fundargerð ef starfsmaður víkur af fundi vegna vanhæfis.
    6. Atkvæðagreiðsla/kosning.
    7. Hverjir greiddu atkvæði með máli, hverjir á móti og hverjir sátu hjá.
    8. Skrá skal lok fundar.
    9. Skrá skal undirritun fundargerðar.
  4. Fundargerðir skráðar í tölvu. Bæjarstjórn er heimilt að ákveða að fundargerðir séu skráðar í tölvu/fundargerðakerfi. Sé það gert skal skrá í gerðabók bæjar­stjórnar, fastanefnda og annarra nefnda, stjórna og ráða, númer fundar, hvar og hvenær fundur er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu/fundar­gerðakerfi. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerðar.
  5. Nöfn þeirra sem skrá skal í fundargerð. Skrá skal nöfn viðstaddra bæjarfulltrúa eða nefndarmanna í fundargerð. Ef varamaður situr fund er rétt að skrá fyrir hvaða aðalmann hann situr fundinn. Skrá skal hvaða embættismenn sitja fundinn. Ef embættismenn eða gestir sitja fundinn eða hluta hans skal skrá athugasemd um slíkt undir viðkomandi dagskrárlið fundarins.
  6. Um skráningu dagskrármála í fundargerð og niðurstöðu þeirra. Skrá skal í fundargerð heiti dagskrármála, málsnúmer og röð þeirra á dagskrá fundarins.
    Skrá skal í fundargerðina við dagskrármálið sjálft, hvaða afgreiðslu það hafi hlotið, ályktanir og niðurstöður, s.s. hvort mál hafi verið samþykkt, því synjað, frestað, vísað til umsagnar nefndar eða starfsmanns, vísað til fullnaðarafgreiðslu nefndar eða starfsmanns eða hvort máli hafi verið vísað frá. Varði afgreiðsla dagskrármáls ekkert af þessu er málið lagt fram án efnislegrar afstöðu til þess.
    Fundargerðir nefnda sem lagðar eru fyrir bæjarstjórn skulu lagðar fyrir í heild, þ.e. með öllum þeim dagskrármálum sem þær mynda og fer um afgreiðslu þessara fundargerða með vísan til 1. og 2. mgr. þessa töluliðs. Ályktanir eða samþykktir í fundargerðum nefnda sem þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar skal færa sérstaklega í fundargerð. Skýrt þarf að koma fram hvaða afgreiðslu hver dagskrárliður þessara fundargerða fær. Aðrir liðir fundargerðar eru lagðir fram til kynningar.
    Varðandi framkvæmd afgreiðslu dagskrármála skal skrá með hvaða hætti niðurstaða, samþykkt, synjun, frestun o.s.frv. var fengin. Hvort niðurstaðan var eftir atvikum fengin samhljóða, fjöldi atkvæða með og atkvæði á móti, hvort um hjásetu var að ræða o.s.frv., hvort krafist hafi verið skriflegrar atkvæðagreiðslu o.fl., en um þessi atriði vísast að öðru leyti til laga.
    Varðandi aðrar athafnir sem fram fara á fundum bæjarstjórnar eða nefnda, s.s. kosningar ýmiss konar, gildir að tilgreina skal þær sem sérstakt dagskrármál og númer hvað þær eru á dagskrá fundarins. Um framkvæmd slíkra kosninga vísast að öðru leyti til laga.
    Komi fram ósk um bókun frá bæjarfulltrúa, nefndarmanni eða öðrum þeim sem heimild hefur til að bóka skal skrá bókun undir viðkomandi dagskrármáli. Bókanir skulu færðar til bókar áður en til afgreiðslu fundargerðar kemur.
  7. Vikið af fundi vegna vanhæfis. Skrá skal í fundargerð ef bæjarfulltrúi eða nefndarmaður víkur sæti vegna vanhæfis. Skrá skal hvort farið hefur fram atkvæðagreiðsla um hæfi og úrslit hennar. Skrá skal hvaða mál vanhæfið varðar og hvort og þá hvaða varamaður tekur sæti hans. Skrá skal hvenær bæjarfulltrúi tekur aftur sæti og varamaður víkur af fundi.
    1. Skrá skal í fundargerð ef embættismaður/starfsmaður, sem hefur málfrelsi og tillögurétt, víkur af fundi vegna vanhæfis. Skrá skal hvaða mál vanhæfið varðar.
  8. Undirritun í gerðabók. Við lok fundar skal fundargerð lesin upp og viðstaddir kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn/nefndarmenn rita eigin hendi undir hafi hún verið færð beint í gerðabók og staðfesta þar með að rétt hafi verið fært til bókar. Við endurrit fundargerða skal setja skammstöfunina m.e.h. (með eigin hendi) aftan við nafn viðkomandi. Sama gildir hafi fundargerð verið færð í tölvu, þá skulu kjörnir fulltrúar undirrita gerðabók sem í hefur verið fært. Bæjar­fulltrúi/ nefndarmaður sem vill gera athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað hana með fyrirvara um það atriði.
  9. Um undirritun og frágang tölvufærðrar fundargerðar. Í lok fundar skal fundargerð prentuð, lesin upp og undirrituð af kjörnum fulltrúum. Þá skulu forseti/formaður nefndar og a.m.k. einn kjörinn fulltrúi setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.
  10. Um undirritun fundargerða símafunda. Ef haldinn hefur verið símafundur undirritar sveitarstjórnarmaður/nefndarmaður sem ekki var viðstaddur á fundarstað, fundargerð á næsta fundi bæjarstjórnar/nefndar.
  11. Trúnaðarmál. Mál sem tekið er fyrir á luktum fundi bæjarstjórnar skal skrá sem trúnaðarmál og færa í sérstaka fundargerðabók bæjarstjórnar. Ef um er að ræða viðkvæm persónuleg málefni og/eða mál sem falla undir ákvæði upplýsingalaga nr. 140/2012 með síðari breytingum skal bóka umfjöllun og afgreiðslu slíkra mála í sérstaka trúnaðarmálabók nefndar. Í fundargerð skal koma fram málsnúmer, vegna tilvísunar í viðkomandi mál í skjalakerfi, og heiti á dagskrárliðnum skal vera „Trúnaðarmál“. Tilvísun í færslur í trúnaðarmálabók skal koma fram í fundar­gerð.
  12. Um varðveislu fundargerða. Skjöl og gögn sem verða til í starfsemi sveitar­félagsins s.s. fundargerðir og önnur skráð fundargögn bæjarstjórnar og nefnda á hennar vegum tilheyra skjalasafni sveitarfélagsins og eru eign þess og fer um varðveislu þeirra skv. gildandi lögum og reglum hverju sinni.

17. gr.

Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.

Um hæfi bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins til þátttöku í með­ferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórn­valds­ákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórn­sýslu­laga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveitarstjórnarlögum. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar, eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður sveitarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis sveitarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.

Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitar­félagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélagsins. Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.

18. gr.

Varamenn í bæjarstjórn.

Varamenn taka sæti í þeirri röð sem þeir voru kosnir til bæjarstjórnar eða eftir samkomulagi sem aðilar að sameiginlegum framboðslista hafa komið sér saman um. Tilkynning um slíkt samkomulag skal lögð fram í upphafi kjörtímabils og gildir hún til loka þess.

IV. KAFLI

Réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.

19. gr.

Skyldur bæjarfulltrúa.

Bæjarfulltrúa ber skylda til að taka þátt í öllum bæjarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur forseti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan bæjar­stjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.

Hverjum bæjarfulltrúa er skylt að inna af hendi störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnarinnar.

Bæjarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

20. gr.

Réttur bæjarfulltrúa.

Bæjarfulltrúar eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.

Bæjarfulltrúi á rétt á að tekið verði á dagskrá bæjarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess.

Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá bæjarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.

Bæjarfulltrúar hafa málfrelsi á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundar­sköpum bæjarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjar­stjórnar.

Vilji bæjarfulltrúi ekki una úrskurði forseta um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til bæjarstjórnar sem sker úr án umræðna.

21. gr.

Aðgangur að gögnum.

Vegna starfa sinna í bæjarstjórn á sérhver bæjarfulltrúi rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í bæjarstjórn. Beiðni um upplýsingar skal beina til bæjarstjóra.

Ef gögn eru undanþegin upplýsingarétti almennings er óheimilt að taka af þeim afrit og fara með þau af skrifstofu, sbr. 28. gr. sveitarstjórnarlaga, nema að höfðu samráði við bæjarstjóra.

Bæjarfulltrúi skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.

22. gr.

Siðareglur og góðir starfshættir.

Bæjarfulltrúi skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem bæjarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

23. gr.

Lausn frá störfum.

Telji bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við bæjarstjórn að hún létti af honum störfum eða veiti honum lausn úr bæjarstjórn um tiltekinn fyrirfram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.

Þegar bæjarfulltrúi flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má bæjarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr bæjarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitar­félaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en bæjarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir bæjarfulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.

Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn. Ef bæjarfulltrúi missir fjár­forræði skal bæjarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

24. gr.

Boðun varamanna.

Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í bæjarstjórn má boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur bæjarfulltrúi krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra bæjarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslu­tíma máls.

Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsu­fars­ástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í bæjar­stjórn á þeim fundi. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.

Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari, eins fljótt og auðið er og sjálfur boða sinn varamann til fundarins. Þegar fyrirséð er að aðalmaður í bæjarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.

Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í bæjarstjórn skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórn frá og með næsta fundi.

25. gr.

Þóknun o.fl.

Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitar­stjórnar­innar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

Bæjarfulltrúi má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.

26. gr.

Réttindi og skyldur varamanna.

Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa, eiga einnig við um varamenn þegar þeir taka sæti í bæjarstjórn.

V. KAFLI

Bæjarráð.

27. gr.

Kosning bæjarráðs.

Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá aðal­menn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til árs í senn. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð. Þeir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama lista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann.

Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna.

Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað.

28. gr.

Fundartími bæjarráðs.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku þær vikur sem bæjarstjórn fundar ekki. Bæjarstjórn ákveður fundartíma bæjarráðs í upphafi kjörtímabils.

Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjar­ráðs­menn óska þess.

29. gr.

Boðun funda bæjarráðs.

Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu eða rafrænu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund.

Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna varamanni sínum og bæjarstjóra um forföll og boða sjálfur sinn varamann.

30. gr.

Stjórnun bæjarráðs.

Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðsins.

Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmanna óskar þess.

31. gr.

Áheyrnarfulltrúar í bæjarráði.

Framboðslista, sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki í bæjarráði, er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í bæjarráði.

Áheyrnarfulltrúi í bæjarráði skal uppfylla kjörgengisreglur 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Þeir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama lista og áheyrnarfulltrúi eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann.

32. gr.

Verkefni bæjarráðs.

Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn sveitar­félagsins að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin.

Bæjarráð hefur eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess, semur drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggur þau, ásamt bæjarstjóra, fyrir bæjarstjórn.

Þá sér bæjarráð um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir bæjarstjórn til meðferðar og afgreiðslu.

Meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella.

Bæjarstjórn getur falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála, nema lög mæli á annan veg.

33. gr.

Heimild bæjarráðs til fullnaðarákvörðunar.

Bæjarstjórn getur falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu einstakra mála. Vald til fullnaðar­afgreiðslu máls getur aldrei falið í sér vald til töku ákvörðunar sem gengur gegn fjár­hags­áætlun eða öðrum almennum og bindandi reglum eða áætlunum sem bæjar­stjórn hefur sett.

Bæjarráði er heimil fullnaðarafgreiðsla kjörskráa fyrir kosningar, sbr. ákvæði laga um kosningar til sveitarstjórna, Alþingis og forsetakosningar.

Fullnaðarákvarðanir sem teknar hafa verið sæta ekki eiginlegu málskoti innan stjórnsýslu sveitarfélagsins, heldur getur aðili máls átt rétt á endurupptöku ákvörðunar, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ef óskað er endurupptöku máls sem bæjarráð, nefnd eða starfsmaður hefur afgreitt, sbr. 5. mgr. 32. gr., skal leggja það fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.

VI. KAFLI

Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en bæjarráð.

34. gr.

Kosning í fastanefndir og kjörtímabil þeirra.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir bæjarstjórnar.

Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og bæjarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.

Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin bæjarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum vald­heimilda og fyrri bæjarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.

35. gr.

Kosning og kjörgengi.

Kosningar í fastanefndir bæjarstjórnar, nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skal bæjarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Bæjarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndar­setu.

36. gr.

Valdsvið nefnda og framsal bæjarstjórnar til fastanefnda
á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.

Bæjarstjórn getur getur falið nefnd/ráði/stjórn fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið bæjarstjórn til ákvörðunar, sbr. 10. tölulið 5. gr. samþykktar þessarar. Vald til fullnaðarafgreiðslu máls getur aldrei falið í sér vald til töku ákvörðunar sem gengur gegn fjárhagsáætlun eða öðrum almennum og bindandi reglum eða áætlunum sem bæjarstjórn hefur sett.

Heimildir fastanefnda til fullnaðarafgreiðslu mála eru háðar því að samþykktir þeirra sem hafa í för með sér að útgjöld séu innan heimilda í fjárhagsáætlun fyrir viðkomandi málaflokk.

Fullnaðarákvarðanir sem teknar hafa verið sæta ekki eiginlegu málskoti innan stjórnsýslu sveitarfélagsins, heldur getur aðili máls átt rétt á endurupptöku ákvörðunar, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Ef óskað er endurupptöku máls sem afgreitt hefur verið sbr. 1. mgr. skal leggja það fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.

Sé nefnd ekki falið að taka fullnaðarákvörðun um mál, skv. lögum eða samþykkt þessari, teljast ályktanir hennar tillögur til bæjarstjórnar, enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir eða samþykktir nefndar. Slíkar ákvarðanir þurfa staðfestingu bæjarstjórnar.

37. gr.

Afgreiðsla á fundargerðum.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir bæjarstjórn til kynningar eða afgreiðslu og staðfestingar.

Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar eru lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreidd með formlegum hætti.

Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir bæjarráð eftir því sem fyrir er mælt í samþykkt þessari.

38. gr.

Fundir nefnda og ályktunarhæfi.

Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi að lög eða eðli máls hamli því ekki.

Ef fram kemur ósk frá a.m.k. 50 íbúum um að haldinn verði opinn nefndarfundur skal óskin lögð fram skriflega og í henni koma fram hvaða máli viðkomandi vilja fylgjast með. Óskinni skal komið á framfæri við formann nefndar eða sviðsstjóra. Nefndin skal þá taka óskina fyrir og greiða um hana atkvæði.

Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.

39. gr.

Fundarstjórn og fundargerðir.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um með­ferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Sviðsstjórar rita að jafnaði fundargerðir nefnda. Starfsmenn sveitarfélagsins sitja einstaka dagskrárliði þegar eftir því er leitað samkvæmt eðli máls og skal boðun starfsmanna koma fram í dagskrá fundarboðs.

Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 16. gr. samþykktar þessarar.

40. gr.

Varamenn.

Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til bæjarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd bæjarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.

Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.

41. gr.

Boðun varamanna.

Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.

Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar bæjarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.

Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.

42. gr.

Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.

Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða vara­menn í bæjarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjör­tíma­bili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við bæjarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.

Bæjarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan bæjar­stjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndar­maður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnar­skyldu. Ennfremur getur bæjarfulltrúi krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Bæjarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnis­laus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun.

Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitar­félagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitar­stjórnar­laga nema enginn ágreiningur sé innan bæjarstjórnar um breytingarnar.

Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.

43. gr.

Áheyrnarfulltrúar.

Framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn, en nær ekki kjöri í fastanefnd, er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til þátttöku í fundum nefnda. Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi nefnd.

44. gr.

Þóknun.

Bæjarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati bæjarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur. Bæjarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins.

45. gr.

Önnur réttindi og skyldur.

Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar. Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.

46. gr.

Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem bæjarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum bæjarstjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.

47. gr.

Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.

Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir:

A.

 

Til eins árs:

  

1.

Bæjarráð. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitar­stjórnar­kosningum kjósa þrjá aðalmenn og þrjá til vara í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitar­stjórnarlaga. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð. Kveðið er á um verkefni bæjarráðs í 31. gr. samþykktar þessarar en auk þeirra verkefna sem þar er kveðið á um hefur bæjarráð með höndum atvinnumál. Bæjarráð fer jafnframt með stjórn Eignasjóðs, félagslegra íbúða, Víðihlíðar, vatnsveitu Grindavíkur og fráveitu Grindavíkur.

B.

 

Til fjögurra ára. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara, nema annað sé tekið fram, í eftirtaldar nefndir sem kosið er í á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjar­stjórnar. Bæjarstjórn kýs nefndum formann og varaformann.

 

I. 

Fjármála- og stjórnsýslusvið.

  

1.

Yfirkjörstjórn. Bæjarstjórn kýs á fyrsta fundi sínum þrjá fulltrúa og jafn­marga til vara í yfirkjörstjórn til fjögurra ára vegna kosninga til Alþingis, sbr. 10. gr. laga nr. 24/2000, og sveitarstjórna, sbr. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þá getur bæjarstjórn kosið þrjá menn og þrjá til vara í undirkjörstjórn. Heimilt er að kjósa hana síðar.

 

II. 

Frístunda- og menningarsvið.

  

1.

Frístunda- og menningarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin er bæjarstjórn til ráðgjafar um íþrótta-, frístunda- og forvarnarmál, og menningar- og safnamál, m.a. með vísan til bókasafnalaga nr. 150/2012, ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindisbréfi. Nefndin skipar fulltrúa í ungmennaráð í samræmi við sam­þykktir þar að lútandi.

 

III. 

Félagsþjónustu- og fræðslusvið.

  

1.

Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. Nefndin fer einnig með málefni leikskóla skv. 2. mgr. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og málefni tónlistarskóla skv. 3. mgr. 3. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985, ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindisbréfi.

  

2.

Félagsmálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Félagsmálanefnd fer með verkefni barnaverndarnefndar skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002, öldr­unar­­mál skv. 7. gr. laga nr. 125/1999, lögum um jafnréttismál nr. 10/2008, málefni fatlaðra skv. lögum nr. 59/1992, húsnæðismál skv. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindisbréfi.

 

IV. 

Skipulags- og umhverfissvið.

  

1.

Skipulagsnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin annast skipulagsmál, sbr. 6. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og byggingarmál, sbr. 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, og umferðarmál sbr. heimild í 2. mgr. 116. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindisbréfi. Nefndin skal vera bæjarstjórn til ráðgjafar um málefni brunavarna, framkvæmdir, veitur og eignamál. Skipu­lags- og umhverfisnefnd hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu eftir­farandi mála sem nánar er útfært í erindisbréfi nefndarinnar.

   

Skipulagsnefnd er heimilt að samþykkja deiliskipulagstillögur sem fá ekki athugasemdir á auglýsingatíma og umsagnir lögbundinna umsagnaraðila séu ekki þess eðlis að breyta þurfi deiliskipulagstillögum eftir auglýsingu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

   

Skipulagsnefnd er heimilt að samþykkja skipulagslýsingar til kynningar skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og deiliskipulagstillögur til for­kynningar skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

   

Skipulagsnefnd er heimilt að samþykkja grenndarkynningar þar sem deili­skipulag er ekki fyrir hendi, sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

   

Skipulagsnefnd er heimilt að ákveða nafngiftir á hverfum, götum og torgum.

  

2.

Umhverfis- og ferðamálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin annast verkefni ferðaþjónustunnar, markaðs- og kynningarmál, umhverfismál og verkefni náttúruverndarnefndar, sbr. 10. gr. laga nr. 44/1999 og gróðurvernd skv. 19. gr. laga um landgræðslu nr. 17/1965, lög um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003, lög um upplýsingarétt um umhverfis­mál nr. 23/2006. Nefndin skal vera bæjarstjórn til ráðgjafar um málefni umhverfisins, ferðaþjónustu, og markaðs- og kynningarmál og sinna öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindisbréfi. Nefndin skal vinna í samráði við stjórn Reykjanes jarðvangs og Reykjanes­fólkvangs.

  

3.

Almannavarnanefnd. Sex aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 9. og 11. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008, að fengnum tilnefningum frá lög­reglu­stjóra, slökkviliðsstjóra, björgunarsveitinni Þorbirni og Rauða krossi Íslands.

  

4.

Fjallskilanefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin sér um fjallskil samkvæmt fjallskilasamþykkt.

 

V. 

Grindavíkurhöfn.

  

1.

Hafnarstjórn. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. ákvæðum hafna­laga nr. 61/2003. Hafnarstjórn sinnir rekstri og stefnumótun Grinda­víkur­hafnar, ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindis­bréfi.

C.

 

Stjórnir og samstarfsráð.

  

Hér er um að ræða stjórnir stofnana með sjálfstæðan fjárhag og tilnefningar í samstarfsráð sem hafa endanlegt ákvörðunarvald í málefnum sínum, þ.e. þurfa ekki staðfestingu bæjarstjórnar til að koma málum í framkvæmd innan ákveðins fjárhagslegs ramma. Kjörtímabil þeirra er samkvæmt samþykktum um stjórn viðkomandi stofnunar.

  

1.

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS). Bæjarstjórn kýs einn aðal­mann og annan til vara í stjórn SSS samkvæmt samþykktum þess hverju sinni. Fulltrúar sveitarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjör­innar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjar­stjórnar.

  

2.

Samstarfsnefnd um svæðisskipulag Suðurnesja. Tveir aðalmenn og jafn­margir til vara skv. samþykktum um stjórn nefndarinnar. Minnihluti skal skipa annan fulltrúann og meirihlutinn hinn.

  

3.

Heilbrigðisnefnd. Bæjarstjórnirnar á Suðurnesjum kjósa sameiginlega fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í nefndina skv. 11. gr. laga um hollustu­hætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

  

4.

Stjórn Reykjanesfólkvangs. Einn aðalmaður og einn til vara samkvæmt samþykktum Reykjanesfólkvangs.

  

5.

Stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja. Einn aðalmaður og einn til vara samkvæmt samþykkt sorpeyðingarstöðvarinnar.

  

6.

Stjórn atvinnuþróunarfélagsins Heklunnar. Einn aðalmaður og einn til vara samkvæmt samþykkt félagsins.

  

7.

Stjórn Reykjanes jarðvangs. Einn aðalmaður og einn til vara samkvæmt samþykkt félagsins.

  

8.

Stjórn Kvikunnar. Samkvæmt skipulagsskrá félagsins.

  

9.

Menningarráð Suðurnesja. Einn aðalmaður og einn til vara samkvæmt samþykkt ráðsins.

D.

 

Tilnefningar og kosningar.

  

Fulltrúar eru kosnir á ársþing og ársfundi stofnana sem sveitarfélagið á aðild að. Kosning skal fara fram á fyrsta og/eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og síðan í júní ár hvert vegna þeirra tilnefninga sem gilda í eitt ár.

  

1.

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt lögum um Samband íslenskra sveitarfélaga kýs bæjarstjórn aðal- og varafulltrúa á landsþing sambandsins. Fulltrúar sveitarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.

  

2.

Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Bæjarstjórn kýs einn aðalfulltrúa og einn til vara í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Bruna­bóta­félags Íslands. Fulltrúi sveitarfélagsins er kosinn á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hans hið sama og bæjar­stjórnar.

E.

 

Verkefnabundnar nefndir.

  

Bæjarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verk­efnum. Umboð slíkra nefnda stendur til loka kjörtímabils eða þar til verk­efni hennar er lokið. Bæjarstjórn getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. Bæjarstjórn útbýr erindisbréf fyrir nefndirnar þar sem hlutverk og staða þeirra er skilgreind. Greiðsla nefndarlauna fer fram í samræmi við reglur um greiðslu nefndalauna verkefnabundinna nefnda og starfshópa.

VII. KAFLI

Bæjarstjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.

48. gr.

Ráðning bæjarstjóra.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og verkefni sveitarfélagsins. Bæjarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími bæjarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil bæjarstjórnar.

49. gr.

Hlutverk bæjarstjóra.

Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins. Hann skal sjá um að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.

Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í bæjarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda og ráða sem bæjarstjórn skipar.

Bæjarstjóri skal sjá um að fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og annarra nefnda bæjar­stjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir þær sem teknar eru af hálfu bæjarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi bæjarstjórn ekki falið það öðrum.

Bæjarstjóri er prókúruhafi sveitarfélagsins. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki bæjarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.

Bæjarstjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnar þarf til.

50. gr.

Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.

Bæjarráð ræður stjórnendur sviða, sbr. B-lið 47. gr. Bæjarráð veitir lausn frá störfum hvort heldur er fullnaðarlausn eða tímabundna.

Stjórnendur sviða sitja fundi sinna fagnefnda með málfrelsi og tillögurétt. Ef þess er óskað ber þeim að víkja af fundi við umræður og afgreiðslu máls þegar það varðar þá sjálfa, skyldmenni eða nána venslamenn þeirra.

51. gr.

Um ráðningu annarra starfsmanna.

Sviðsstjórar ráða stjórnendur þeirra stofnana sem undir þá heyra, að höfðu samráði við viðkomandi fagnefnd, og veita þeim lausn frá störfum.

Forstöðumenn ráða starfsmenn sinna stofnana, bæði fasta og lausráðna, og veita þeim lausn frá störfum, nema vald til slíks sé með lögum fengið öðrum aðilum eða á annan veg mælt fyrir í reglugerðum um sérmál tiltekinna stofnana.

52. gr.

Stöður auglýstar.

Fastar stöður skulu að jafnaði auglýstar til umsóknar í samræmi við ákvæði starfs­manna­stefnu Grindavíkurbæjar. Bæjarráð getur ákveðið hver almenn skilyrði skulu gilda um ráðningar í stöður hjá sveitarfélaginu.

53. gr.

Fastráðnir starfsmenn.

Fastráðnir starfsmenn sveitarfélagsins skulu ráðnir með gagnkvæmum uppsagnarfresti. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við fastráðna starfsmenn þar sem m.a. er kveðið á um ráðningartíma og starfssvið þeirra. Um kaup og kjör fer eftir ráðningarsamningi og kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags.

54. gr.

Lausráðnir starfsmenn.

Um ráðningu lausráðinna starfsmanna fer eftir ákvæðum starfsmannastefnu Grindavíkur­bæjar. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.

55. gr.

Framsal á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála
frá bæjarstjórn og nefndum til starfsmanna.

Bæjarstjórn er heimilt að fela starfsmönnum fullnaðarafgreiðslu mála á sama hátt og með sömu skilyrðum og nefnd eru í 36. gr. samþykktar þessarar. Heimild þessi skal sett í starfslýsingu viðkomandi starfsmanna og í erindisbréf viðkomandi nefndar sem málið heyrir undir og staðfest er af bæjarstjórn.

Bæjarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu starfsmanna en viðkomandi fagnefndir hafa eftirlit með þeim og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra.

Starfsmanni er alltaf heimilt að vísa ákvörðun skv. 1. mgr. til viðkomandi fagnefndar til fullnaðarafgreiðslu.

Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er heimilt samkvæmt samþykktum þessum að gefa út eftirfarandi framkvæmdaleyfi skv. 13., 14. og 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem skipulagsnefnd hefur veitt samþykki sitt fyrir.

Framkvæmdaleyfi vegna:

flutningskerfa fráveitu, hitaveitu, vatnsveitu, fjarskipta, rafveitna og verulegra breyt­inga á slíkum mannvirkjum,
framkvæmda á tjaldsvæðum og svæðum til íþróttaiðkunar,
landfyllingar,
landmótunar undir 50 m³,
lagningar vega, göngu-, hjóla- og reiðstíga,
lokana gatna og vega í 24 klst. eða skemur, með fyrirvara um leyfi lögreglu.

Byggingarfulltrúa er heimilt samkvæmt samþykkt þessari að úthluta lóðum fyrir einbýlis­hús samkvæmt reglum um lóðarveitingar sem bæjarstjórn setur.

Byggingarfulltrúa er heimilt samkvæmt samþykkt þessari að veita teikninga- og bygg­ingar­­fresti samkvæmt almennum byggingarskilmálum og samþykktum sem bæjar­stjórn setur.

56. gr.

Þagnarskylda starfsmanna.

Starfsmenn Grindavíkurbæjar og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

57. gr.

Um starfskjör og réttindi starfsmanna.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna Grindavíkurbæjar fer eftir ákvæðum kjara­samninga hverju sinni og ákvæðum ráðningarsamninga.

VIII. KAFLI

Fjármál sveitarfélagsins.

58. gr.

Fjárstjórnarvald bæjarstjórnar.

Einvörðungu bæjarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitarfélagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar þar á með lögum:

  1. staðfestingu ársreiknings,
  2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
  3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
  4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
  5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
  6. sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
  7. álagningu skatta og gjalda,
  8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.

59. gr.

Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir.

Bæjarráð og bæjarstjóri leggja samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Bæjarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu bæjarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.

Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breyt­ingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráð­stöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhags­legri stöðu sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætlunar­tímabilsins.

Bæjarstjórn skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.

60. gr.

Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.

Ákvörðun sem bæjarstjórn tekur skv. 59. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitar­stjórnar­laga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjár­hags­legar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.

Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.

Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar bæjarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi bæjarstjórnarinnar.

61. gr.

Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldu­bundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.

62. gr.

Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.

Bæjarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.

Áður en bæjarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikn­ings­ár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.

Um heimildir Grindavíkurbæjar til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.

63. gr.

Ársreikningur.

Gera skal ársreikning fyrir sveitarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. sveitarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af bæjarráði og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.

Bæjarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana og fyrir­tækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.

Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitar­stjórnar­mála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.

64. gr.

Endurskoðun ársreikninga.

Bæjarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endur­skoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrir­mælum 72. og 73. gr. sveitarstjórnarlaga.

IX. KAFLI

Samráð við íbúa – Þátttökulýðræði.

65. gr.

Bæjarstjórn skal leitast við að tryggja íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess möguleika til að taka þátt í og hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins og undirbúning stefnumótunar, sbr. ákvæði X. kafla sveitarstjórnarlaga.

Bæjarstjórn skal sérstaklega vinna að því að íbúar sveitarfélagsins geti fengið greinar­góðar upplýsingar um áætlanir sem sveitarfélagið hefur til meðferðar og önnur mál sem hafa verulega þýðingu fyrir sveitarfélagið. Í því skyni verði eftir því sem best hentar veittar upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins, dreifibréf send á heimili í sveitar­félaginu eða haldnir borgarafundir.

66. gr.

Borgarafundur að frumkvæði íbúa.

Ef 10% af þeim sem kosningarrétt eiga í Grindavíkurbæ óska borgarafundar skv. 105. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 skal bæjarstjórn verða við því svo fljótt sem unnt er. Um framkvæmd borgarafundar fer eftir ákvæði 105. gr. sveitarstjórnarlaga.

67. gr.

Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.

Ef 33% þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal bæjarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst. Bæjarstjórn skal fjalla um beiðni þar að lútandi á næsta fundi sínum og taka ákvörðun um hvort fresta skuli réttaráhrifum þeirrar ákvörðunar sem krafist er að fari í atkvæðagreiðslu frá og með þeim tíma að bæjarstjórn hefur fjallað um beiðnina. Fresta skal réttaráhrifum viðkomandi ákvörðunar ef þess er nokkur kostur að teknu tilliti til aðstæðna hverju sinni.

68. gr.

Gildistaka.

Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 24. nóvember 2014.

F. h. innanríkisráðherra,

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 12. desember 2014