Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 919/2011

Nr. 919/2011 5. október 2011
REGLUR
um breyting á reglum nr. 1057/2010, um skattmat vegna tekna manna tekjuárið 2011.

1. gr.

Í stað fjárhæðanna „104“, „119,60“ og „150,80“ í kafla 3.1 Frádráttur kostnaðar á móti ökutækjastyrk, kemur: „111“, „127,65“ og „160,95“.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á fjárhæðum vegna dagpeninga innanlands í kafla 3.2 Frádráttur á móti dagpeningum:

kr.   

  Fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring

20.800

  Fyrir gistingu í einn sólarhring

11.100

  Fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag

9.700

  Fyrir fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag

4.850

3. gr.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast gildi frá og með 1. október 2011.

Reykjavík, 5. október 2011.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

Ingvar J. Rögnvaldsson
vararíkisskattstjóri.       

B deild - Útgáfud.: 6. október 2011