Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 271/2010

Nr. 271/2010 25. mars 2010
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024, miðbærinn.

Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur ráðherra þann 25. mars 2010 staðfest breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024 frá 8. júlí 2003.
Breytingin felst í breyttri afmörkun hverfisverndarsvæðis á klapparholtinu Urðum, þannig að hverfisvernd á u.þ.b. 2.670 m² svæði í suðurjaðri holtsins fellur brott en stækkar að sama skapi á tveimur stöðum til norðurs. Einnig stækkar miðsvæðið að gatnamótum Langatanga og Vesturlandsvegar um 1 ha á kostnað opins svæðis til sérstakra nota.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun gert tillögu til ráðherra um staðfestingu.
Breytingin öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 25. mars 2010.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

B deild - Útgáfud.: 29. mars 2010