Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 568/2014

Nr. 568/2014 30. maí 2014
AUGLÝSING
um umferð í Reykjavík.

Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið eftirfarandi:

  1. að stöðubann verði við vesturkant Sólvallagötu á milli Framnesvegar og Ána­nausta. Bannið er táknað með umferðarmerkinu B21.11.
  2. að afmarkað verði eitt stæði við vesturkant Sólvallagötu til vörulosunar með tímatakmörkum frá klukkan 08.00 – 12.00.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 30. maí 2014.

Stefán Eiríksson.

B deild - Útgáfud.: 18. júní 2014