Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, hefur ráðherra þann 9. desember 2008 staðfest breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024 frá 8. júlí 2003. Breytingin felst í eftirfarandi:
- Lega tengivegar milli Skeiðholts og Leirvogstungu á um 800 m kafla færist til norðurs nær hesthúsasvæði og síðan í sveig til austurs. Jafnframt breytist lega aðalstígs meðfram tengivegi.
- Suðvesturmörk íbúðarsvæðisins í Leirvogstungu færast lítillega til austurs og gert er ráð fyrir tveimur (nýjum) aðkomuleiðum inn á íbúðarsvæðið, sem minnkar um 0,6 ha við breytinguna og verður 43,6 ha.
- Afmörkun hverfisverndar Leirvogsár breytist til samræmis við greinargerð aðalskipulags Mosfellsbæjar 2002-2024.
- Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun yfirfarið erindið og sent ráðherra til staðfestingar.
Breytingin öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 9. desember 2008.
F. h. r. Magnús Jóhannesson.
Logi Kjartansson.
|