Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 10/2007

Nr. 10/2007 8. janúar 2007
AUGLÝSING
um deiliskipulag II. áfanga Helgafellshverfis, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 13. desember 2006 í samræmi við 25. gr. skipu­lags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulag annars áfanga íbúðarhverfis í Helgafells­landi. Deiliskipulagið fjallar um 6,6 ha svæði norðan og vestan miðhverfis byggðarinnar og gerir ráð fyrir 62 íbúðum á 35 lóðum í blandaðri byggð sérbýlis- og fjöleignarhúsa, auk einnar lóðar fyrir verslun og þjónustu.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 8. janúar 2007,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 10. janúar 2007