Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 943/2013

Nr. 943/2013 23. október 2013
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 301/2013 að því er varðar árlegar endurbætur á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, tímabilið 2009-2011.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2013, frá 4. október 2013, um breyt­ingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 301/2013 frá 27. mars 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar árlegar endurbætur á alþjóðlegum reiknings­skila­stöðlum, tímabilið 2009-2011.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 301/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB nr. 56/2013, 10. október 2013 bls. 637.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2013 er birt sem fylgiskjal með reglu­gerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um árs­reikn­inga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikn­inga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. október 2013.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Harpa Theodórsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 28. október 2013