Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að fengnum tillögum bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar hefur eftirfarandi verið ákveðið: - Stöðvunarskylda er á Búðanesvegi fyrir umferð um Aðalgötu.
- Stöðvunarskylda er á Tjarnarási fyrir umferð um Aðalgötu.
- Biðskylda er á Tjarnarási fyrir umferð um Búðanesveg.
- Biðskylda er á Búðanesi fyrir umferð um Búðanesveg.
- Biðskylda er á Hjallatanga fyrir umferð um Búðanesveg.
- Biðskylda er í Borgarhlíð fyrir umferð um Borgarbraut.
- Hámarkshraði er 35 km á klst. norðan við mót Nýræktarvegs og Aðalgötu.
- Að hámarkshraði er 50 km á klst. á Aðalgötu frá flugvallarafleggjara að Nýræktarvegi.
Reglur þessar taka gildi við birtingu auglýsingarinnar. Sýslumaður Snæfellinga, 4. janúar 2007. Daði Jóhannesson fulltrúi. |