Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 15/2012

Nr. 15/2012 13. janúar 2012
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2012.

1.Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2012, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1255/2011, er til 1. apríl nk. vegna manna, en til 16. maí 2012 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið [email protected] eða póstlagðar til næstu skattstofu fyrir lok umsóknarfrests.
2.Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2011 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2010, og að álögð gjöld 2012 muni af þeim sökum að lágmarki verða 50.000 kr. lægri en við álagningu 2011.
3.Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2012 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2012 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
4.Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku ákvörðunar ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar.
5.Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1255/2011 og taka þegar gildi.

Reykjavík, 13. janúar 2012.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 16. janúar 2012