Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 542/2013

Nr. 542/2013 7. júní 2013
AUGLÝSING
um hvaða atvinnugreinar og störf innan þeirra lög nr. 42/2010, um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum gilda um.

1. gr.

Lög nr. 42/2010, um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum skulu taka til starfa sem falla undir starfsgreinaflokkun ÍSTARF95 sem hér segir: Klasa 122, klasa 131, klasa 312, starfaflokk 4221, deild 51, starfaflokk 5221, klasa 611, klasa 612, klasa 613, bálk 7, bálk 8 og bálk 9 innan þeirra atvinnugreina sem samkomulag Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, sem tók gildi 15. júní 2010 sem og viðaukasamkomulagi sömu aðila frá 5. maí 2011 og 16. apríl 2013, tekur til eins og þær eru skilgreindar í atvinnu­greina­flokkun ÍSAT2008, sbr. viðauka við auglýsingu þessa.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er á grundvelli 3. mgr. 1. gr. laga nr. 42/2010, um vinnu­staða­skírteini og eftirlit á vinnustöðum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1174/2011, um hvaða atvinnugreinar og störf innan þeirra lög nr. 42/2010, um vinnu­staðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum gilda um.

Velferðarráðuneytinu, 7. júní 2013.

Eygló Harðardóttir,
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 12. júní 2013